Skuldatryggingaálag Íslands komið undir 300 punkta 16. september 2010 10:28
Skuldatryggingaálag á evruskuldir Ríkissjóðs Íslands hefur farið stiglækkandi síðustu daga. Þó er ekki um mikla breytingu að ræða, en í lok dags í gær stóð álagið í 299 punktum (2,99%) samkvæmt gögnum úr Bloomberg-gagnaveitunni sem er 11 punktum lægra en það var fyrir viku síðan. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að á hinn bóginn er ekki hægt að segja sömu sögu með skuldatryggingaálagið á Írland. Í lok dags í gær stóð það í 393 punktum og í raun hefur álagið á Írland bara einu sinni áður náð hærra gildi, en það var í febrúar árið 2009 þegar það stóð í 396 punktum í lok dags. Þess má geta að á sama tíma, þ.e. í febrúar árið 2009, stóð skuldatryggingaálagið á Ísland í 1.049 punktum. Meðaláhættuálag á ríki Vestur Evrópu stóð í lok gærdagsins í 176 punktum sem er á svipuðu róli og það hefur verið síðustu daga. Skuldatryggingaálagið á Ísland er fjórða hæsta álagið á meðal þeirra ríkja Vestur Evrópu sem seldar eru skuldatryggingar fyrir. Þau þrjú ríki sem eru með hærra skuldatryggingaálag eru Grikkland (892 punktar), Írland (393 punktar) og svo Portúgal (349 punktar), að því er segir í Morgunkorninu. Við þetta má bæta að álagið hjá Íslandi fór síðast undir 300 punkta í júlí s.l. og hafði þá ekki verið lægra síðan í maí á síðasta ári.
Mest lesið „Það fyrsta sem ég segi er „Góða morgun““ Atvinnulíf Íslensk fyrirtæki geti endurheimt verulegar fjárhæðir Viðskipti innlent Í hópi þeirra sem hlutu Viator Experience-verðlaunin Viðskipti innlent Tvöfaldar tolla á innflutt stál og ál Viðskipti erlent Átök auðkýfinganna: „Ekki farið fram hjá neinum að á milli okkar hefur andað köldu“ Viðskipti innlent Þau keyptu fyrir tuttugu milljónir í útboðinu Viðskipti innlent Gervigreindin og vaxandi vítahringur nýútskrifaðra Atvinnulíf Heiður Björk tekur við eftir brotthvarf Gunnars Egils Viðskipti innlent Birta lista yfir kaupendur: Á annað þúsund keypti fyrir tuttugu milljónir Viðskipti innlent Sektaðar fyrir að trassa með verðmerkingar á Selfossi Neytendur Fleiri fréttir Íslensk fyrirtæki geti endurheimt verulegar fjárhæðir Í hópi þeirra sem hlutu Viator Experience-verðlaunin Heiður Björk tekur við eftir brotthvarf Gunnars Egils GeoSilica hefur framleiðslu á Þeistareykjum Sigurður Jökull stýrir Cruise Iceland Taka við nýjum forstöðumannastöðum hjá Krónunni Dolores ráðin forstöðumaður hjá OK Shein ginni neytendur til skyndikaupa Annar banki býður betra verð en hinn með sömu eigendur Þau keyptu fyrir tuttugu milljónir í útboðinu Sameining við Kviku banka mun taka langan tíma „Grindavíkuráhrifin“ leiða til talsverðrar hækkunar hjá nágrönnum Indó skoraði hæst í Sjálfbærniásnum Fasteignamat hækkar um 9,2 prósent á milli ára Bein útsending: Fasteignamat 2026 kynnt Verðbólga lækkar um 0,4 stig Kvika vinsælasta stelpan á ballinu Bein útsending: Viðurkenningarhátíð Sjálfbærniássins Auður hefur innreið sína á húsnæðislánamarkað Vextir lækka hjá Íslandsbanka Lokun kísilvers á Bakka: „Þetta er grátbölvað“ Arion vill sameinast Kviku Birta lista yfir kaupendur: Á annað þúsund keypti fyrir tuttugu milljónir Bein útsending: Ársfundur Samáls Vilja að stjórnvöld greiði leið kísilversins á Bakka Play tekur flugið til Agadir Halla nýr yfirlögfræðingur Emblu Medical Stöðva rekstur á Bakka í júlí og segja 80 manns upp störfum Heimar mega kaupa Grósku Tap útgerðarinnar vegna fjárfestinga í fiskeldi nemur milljörðum Sjá meira
Átök auðkýfinganna: „Ekki farið fram hjá neinum að á milli okkar hefur andað köldu“ Viðskipti innlent
Átök auðkýfinganna: „Ekki farið fram hjá neinum að á milli okkar hefur andað köldu“ Viðskipti innlent