Fyrri eigendur í ábyrgðum vegna lána til 1998 Þorbjörn Þórðarson skrifar 4. febrúar 2010 18:33
Gaumur, félag Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og fjölskyldu, ISP, sem er í eigu Ingibjargar Pálmadóttur, og Bague, sem er í eigu Hreins Loftssonar, eru í ábyrgð vegna lána til félagsins 1998 en óvíst er hvort gengið verður að þeim. Jón Ásgeir og fjölskylda hafa misst eignarhald sitt á Högum, móðurfélagi Bónuss, Hagkaupa og fleiri verslana, en Arion banki hefur ákveðið að skrá félagið í Kauphöll. Engar breytingar verða á starfsmannahaldi og stjórnendur allra fyrirtækja undir Haga-samstæðunni verða áfram. Jóhannes Jónsson, stofnandi Bónuss, verður starfandi stjórnarformaður og Finnur Árnason verður áfram forstjóri. Finnur Sveinbjörnsson forstjóri Arion banka segir ferlið í málum sem þessum langt og strangt og því gæti það tekið einhverja mánuði að koma félaginu á markað. Milljarða ábyrgð Hluturinn í Högum var áður í eigu félagsins 1998 ehf. sem er mjög skuldsett og eignalaust í dag. Þegar Kaupþing banki lánaði fyrirtækinu 30 milljarða til að kaupa Haga út úr Baugi sumarið 2008 gengust Jón Ásgeir Jóhannesson og aðrir eigendur 1998 ehf. í persónulega ábyrgð fyrir hluta lánsins. Sá ábyrgð hleypur á milljörðum króna. Þegar Finnur Sveinbjörnsson er spurður um hvað verði um ábyrgðirnar segist hann ekki vilja tjá sig um það að svo stöddu. Almenningi og fagfjárfestum mun standa til boða að kaupa hluti í félaginu. Núverandi stjórnendum Haga býðst forkaupsréttur að 15% hlut og þar af Jóhannesi Jónssyni allt að 10% hlut á sama gengi og öðrum fjárfestum. Jóhannes Jónsson, starfandi stjórnarformaður Haga, baðst undan viðtali en sagði í yfirlýsingu að það væri fyrir öllu að nú hefði óvissu um framtíð Haga verið eytt. Hann sagðist vona að þetta myndi skapa vinnufrið í kringum Haga. Starfsmenn og stjórnendur ætla að kaupa Ný fimm manna stjórn verður skipuð í Högum, sem samanstendur af Guðbrandi Sigurðssyni, Ernu Gísladóttur, Steini Loga Björnssyni, Svönu Helen Björnsdóttur og Jóhannesi Jónssyni. Samkvæmt heimildum fréttastofu hyggjast starfsmenn Haga og stjórnendur kaupa fyrirtækið aftur um leið og það verður skráð á markað, en þeir hafa forkaupsrétt að 15 prósenta hlut, eins og áður segir. Ekkert bannar fyrri eigendum og stjórnendum að bjóða í þau 85 prósent sem þeir hafa ekki forkaupsrétt á. Samkvæmt heimildum fréttastofu hyggst Jón Ásgeir Jóhannesson bjóða í fyrirtækið í samvinnu við aðra í þessu útboðsferli.
Mest lesið Er hagstætt að taka bílalán fyrir rafmagnsbíl? Viðskipti innlent Aðskotahlutur í lifrarpylsu: „Mál sem við tökum mjög alvarlega“ Neytendur Birgir Ómar Haraldsson er látinn Viðskipti innlent „Sé fyrir mér að fara að vinna færri daga og öðruvísi verkefni“ Atvinnulíf Margborgar sig að gera við stjörnu í rúðu: Carglass hefur opnað á Íslandi Samstarf Kvika skráði ekki tugi þúsunda viðskipta og fær tugmilljóna sekt Viðskipti innlent Auglýsingarnar súrari og skrýtnari en húmorinn í fyrirrúmi Viðskipti erlent Allar auglýsingar Ofurskálarinnar á einum stað Viðskipti erlent Óli Páll til APRÓ Viðskipti innlent „Ég held bara að við sem þjóð séum ekki tilbúin í þetta“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Þórður Már til Faxaflóahafna Fanney tekur við af Erni hjá Lex „Ekki hlutverk hins opinbera að ýta sparnaði fólks í íbúðir“ Vatn frá Ölfusi í sádiarabískri íþróttaþvottavél Bein útsending: Kraftmeiri sparnaður í seilingarfjarlægð? Óli Páll til APRÓ Er hagstætt að taka bílalán fyrir rafmagnsbíl? Kvika skráði ekki tugi þúsunda viðskipta og fær tugmilljóna sekt Birgir Ómar Haraldsson er látinn „Ég held bara að við sem þjóð séum ekki tilbúin í þetta“ Hækka lánshæfiseinkunn Íslands í ljósi bættrar stöðu ríkisfjármála Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Sjá meira