Peningastefnunefnd: Enn svigrúm til slökunar 3. nóvember 2010 11:22 Arnór Sighvatsson aðstoðarseðlabankastjóri er í peningastefnunefnd bankans.
Peningastefnunefnd Seðlabankans telur að eitthvert svigrúm sé enn til staðar til áframhaldandi slökunar peningalegs aðhalds, að því gefnu að gengi krónunnar haldist stöðugt eða styrkist, og hjaðni verðbólga eins og spáð er. Nefndin segir í yfirlýsingu sinni að áætlanir um afnám hafta á fjármagnshreyfingar skapi hins vegar óvissu um hversu mikið svigrúmið er til skemmri tíma. Ákveðið var í morgun að lækka vexti Seðlabankans um 0,75 prósentur. Vextir á viðskiptareikningum innlánsstofnana lækka í 4,0% og hámarksvextir á 28 daga innstæðubréfum í 5,25%. Vextir á lánum gegn veði til sjö daga lækka í 5,5% og daglánavextir í 7,0%. „Verðbólga minnkaði áfram í september og október, eftir töluverða hjöðnun frá því í mars," segir í yfirlýsingu peningastefnunefndar. „Tólf mánaða verðbólga var 3,3% í október, eða 2,6% ef áhrif hærri neysluskatta eru frátalin, sem er við verðbólgumarkmiðið. Slaki í þjóðarbúskapnum, lækkandi verðbólgu¬væntingar og gengishækkun krónunnar það sem af er ári styðja við áframhaldandi hjöðnun verðbólgu." Ritið Peningamál komu einnig út í dag og samkvæmt spá sem þar er birt verður þróttur innlends efnahagslífs í ár og á næsta ári heldur minni en Seðlabankinn spáði í ágúst. „Enn er þó gert ráð fyrir að efnahagsbati hefjist á seinni hluta ársins. Verðbólga hefur hjaðnað hraðar en spáð var í ágúst og gert er ráð fyrir að verðbólga verði við markmið bankans í lok árs, að hún verði komin niður fyrir 2% á næsta ári, en aukist síðan í átt að markmiði." Þá er bent á að frá fundi peningastefnunefndar í september hefur viðskiptavegið meðalgengi krónu hækkað um tæplega 1%, en krónan hefur veikst lítið eitt gagnvart evru. „Eins og vænst var hafa reglubundin kaup Seðlabankans á gjaldeyri, sem hófust 31. ágúst síðastliðinn, ekki haft veruleg áhrif á gengi krónunnar. Gjaldeyrishöftin, þróun viðskiptakjara og annarra þátta sem áhrif hafa á viðskiptajöfnuð, ásamt aðhaldsstigi peningastefnunnar í samanburði við helstu viðskiptalönd halda áfram að styðja við gengi krónunnar." Peningastefnunefndin telur að eitthvert svigrúm sé enn til staðar til áframhaldandi slökunar peningalegs aðhalds haldist gengi krónunnar stöðugt eða styrkist og hjaðni verðbólga eins og spáð er. „Áætlanir um afnám hafta á fjármagnshreyfingar skapa hins vegar óvissu um hversu mikið svigrúmið er til skemmri tíma. Nefndin er reiðubúin til þess að breyta aðhaldi peningastefnunnar eins og nauðsynlegt er með hliðsjón af því tímabundna markmiði hennar að stuðla að gengisstöðugleika og í því skyni að tryggja að verðbólga verði nálægt markmiði til lengri tíma litið."
Mest lesið Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Viðskipti innlent Ísbúð Vesturbæjar í Skipholti lokað Neytendur Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Viðskipti innlent Ella frá Marel til Landsbankans Viðskipti innlent Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Frá fjósinu í Hörpu – fjölskyldubú hlýtur viðurkenningu Framúrskarandi fyrirtæki Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Viðskipti innlent Fréttirnar sem fylgja okkur í vinnuna Atvinnulíf Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Viðskipti innlent Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Neytendur Fleiri fréttir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Sjá meira