Reisa sextán hæða hótel á Höfðatorgi 3. nóvember 2010 00:01 Ólafur Torfason hótelstjóri ætlar að opna hótelið árið 2013 en það hefur fengið vinnuheitið Fosshótel Reykjavík.
Fjórtán til sextán hæða hótel, með um þrjú hundruð herbergjum, mun rísa á Höfðatorgi í Borgartúni á næstu þremur árum. Verktakafyrirtækið Eykt hefur séð um framkvæmdir á Höfðatorgsreitnum en fyrirtækið á nú í viðræðum um fjármögnun verksins. „Menn ætla að skoða hvernig ástandið er á markaðnum. En ég er búinn að gera leigusamning og fyrirhugað er að opna árið 2013," segir Ólafur Torfason hótelstjóri, sem rekur þrjú hótel undir merkjum Reykjavík Hotels. Skipulag við Höfðatorg var kynnt fyrir um fjórum árum. Þá var gert ráð fyrir þremur turnum og sex sjö til níu hæða húsum ásamt tengibyggingum á reitnum. Eini turninn sem risið hefur til þessa er upp á nítján hæðir. Búið er að leigja út um helming alls rýmis í honum undir ýmiss konar starfsemi, svo sem veitingarekstur á neðstu hæðum. Nokkur fyrirtæki eru með skrifstofur á hæðunum fyrir ofan. Eftir því sem næst verður komist hefur einn turnanna verið settur í salt um óákveðinn tíma ásamt nokkrum byggingum á reitnum. Eins og sjá má á teikningu af reitnum er áætlað að hótelturninn rísi vestan megin við skrifstofuhúsnæðið. Hann er grænn á myndinni. Ólafur Torfason er þrautreyndur í hótelrekstri. Hann hefur rekið Hótel Reykjavík við Rauðarárstíg frá 1992 og festi kaup á Holiday Inn, nú Grand Hótel, af Íslandsbanka þremur árum síðar. Þá rekur hann Hótel Reykjavík Centrum í miðbænum. Hótelin eru rekin undir merkjum Reykjavík Hotels. Óbyggða hótelið hefur fengið vinnuheitið Fosshótel Reykjavík, en Ólafur hefur síðastliðin tvö ár látið til sín taka í rekstri Fosshótelanna. Ólafur segir rekstur hótela almennt ganga ágætlega nú um stundir. Þó verði að kynna landið betur á erlendum vettvangi. „Ef við gerum það vel hef ég engar áhyggjur," segir hann.
Mest lesið Bein útsending: Heinemann sviptir hulunni af breytingum á fríhöfninni Viðskipti innlent Ekkert blabla: „Þá get ég bara spurt Copilot hvað Rakel er með í laun?“ Atvinnulíf Frumkvöðull stimplar sig aftur inn með 622 kílómetra drægni Samstarf Þú þarft ekki alltaf lægri vexti til að spara milljónir á húsnæðislánum Samstarf Á ég að festa vextina á húsnæðisláninu? Viðskipti innlent Tjáir sig ekki um hvort mál tengt Heiðari sé til skoðunar Viðskipti innlent 65 milljarða halli ef svartsýna sviðsmyndin rætist Viðskipti innlent Sjö milljarðar gætu farið frá ríki til flugfélaga með sérlausn Viðskipti innlent Atli Þór til Almannaróms Viðskipti innlent Útlit fyrir lökustu vínframleiðslu í tæp sjötíu ár Viðskipti erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Heinemann sviptir hulunni af breytingum á fríhöfninni Tjáir sig ekki um hvort mál tengt Heiðari sé til skoðunar 65 milljarða halli ef svartsýna sviðsmyndin rætist Á ég að festa vextina á húsnæðisláninu? Atli Þór til Almannaróms Sjö milljarðar gætu farið frá ríki til flugfélaga með sérlausn Markaðurinn verðleggur meiri verðbólgu eftir fjárlögin Reiðarslag, gríðarleg vonbrigði og „efnahagslegt flanerí“ Færri tengifarþegar en fleiri komu til Íslands Ferðamenn verða rukkaðir um aðgang að ferðamannastöðum Bankaskattur hækkaður um 75 prósent Gert ráð fyrir fimm milljarða afgangi „Það er svona sem við stækkum þessa köku“ Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Hagnaðist um 58 milljónir og greiddi 67 í arð „Lán á bara að vera lán“ Komin með ný nöfn Jóhanna, Egill og dr. Tingting til Reykjavík Geothermal Malbiksmeistari stýrir Malbikstöðinni Svara ekki spurningum um mögulegar uppsagnir hjá NetApp Bankaskattar séu fimm sinnum hærri en í samanburðarlöndum Tómas einn vildi halda vöxtum óbreyttum Bláa lónið og Alfreð Gíslason verðlaunuð Skrifstofan á Íslandi lögð niður og óvissa um 75 störf Vísar ásökun um rógsherferð alfarið á bug Heiðar Guðjónsson um málshöfðun Gavia: „Það eru engin svik“ Skipta Citroën og Opel alfarið út fyrir Peugeot Tinna leiðir stefnumótun og viðskiptaþróun hjá Sjóvá Sjá meira