Fjárfestingastofa: Töluvert um fyrirspurnir frá Kína 18. mars 2010 13:49
Þórður Hilmarsson forstöðumaður Fjárfestingastofu Íslands segir að töluvert hafi verið um fyrirspurnir frá kínverskum aðilum um fjárfestingarmöguleika á Íslandi. „Enn sem komið er snúast þessar fyrirspurnir að mestu um möguleika á fjárfestingum í orkufrekum eða orkuháðum iðnaði," segir Þórður. Eins og kunnugt er af frétt hér á síðunni í morgun skrifar einn af dálkahöfundum fréttatímaritsins Newsweek um áhuga Kínverja á Íslandi í tengslum við fyrirsjáanlega opnun siglingaleiða um Norðurskautssvæðið. Hugmyndir Kínverja gangi út á að koma upp umskipunarhöfn á Íslandi fyrir markaði í Evrópu og Norður Ameríku. Þórður segir að enn sem komið er hafi engin formleg fyrirspurn borist um fjárfestingar í hafnaraðstöðu á Íslandi frá Kínverjum. „Enda er kannski of snemmt að vera að spá í slíkt þar sem töluverður tími er í að Norðurskautsleiðin verði opin allt árið," segir Þórður. Fjárfestingastofa veit þó vel af þeirri umræðu sem er í gangi og fylgist með þróun mála. „Við vitum af því að Kínverjar hafa áhuga á að byggja flota risavaxinna flutningaskipa til að sigla á þessari leið í framtíðinni," segir Þórður. „Við erum að tala um sérstyrkt skip sem tækju 15.000 gámaeiningar hvert." Fram kemur í máli Þórðar að Ísland sé ekki eina landið sem er hugsanlegt sem umskipunarstöð fyrir flutningaskip á Norðurleiðinni. Hann nefnir Rotterdam sem dæmi og Noreg einnig. Í Rotterdam sé nú þegar til staðar aðstaða til að þjónusta fyrrgreind risaskip. „Það yrðu mörg lönd sem hefðu áhuga á þessum viðskiptum," segir Þórður.
Mest lesið Fjárfestu í karllægum félögum báðu síðan um fund með forstjóranum Atvinnulíf Hafi áhrif á tugi ungmenna: „Þetta eru vel launuð störf“ Viðskipti innlent Hvikar ekki frá bankaskatti þrátt fyrir viðvaranir um hærri kostnað lántaka Viðskipti innlent Regluleg viðskipti hjá Orkunni skila viðskiptavinum raunverulegum ávinningi Samstarf Elkjøp fær milljónasekt fyrir persónuverndalagabrot Viðskipti erlent Ásta og Sigurður til liðs við Ljósleiðarann Viðskipti innlent Hækka vöruverð: „Umhverfið mjög krefjandi“ Viðskipti innlent OpenAI setur einnig stefnuna á hlutafjárútboð Viðskipti erlent Bein útsending: Enn hærri skattar, fyrir hvern? Viðskipti innlent Vísitala heildarlauna hækkaði um 4,9 prósent Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hvikar ekki frá bankaskatti þrátt fyrir viðvaranir um hærri kostnað lántaka Hækka vöruverð: „Umhverfið mjög krefjandi“ Ásta og Sigurður til liðs við Ljósleiðarann Bein útsending: Enn hærri skattar, fyrir hvern? Hafi áhrif á tugi ungmenna: „Þetta eru vel launuð störf“ Vísitala heildarlauna hækkaði um 4,9 prósent Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Starfsmannaleiga mátti ekki hýrudraga rafvirkja Bætast í hóp samstarfsfélaga Icelandair Flugmenn og Icelandair funda á morgun Sagan full af dæmum þar sem mikilvæg félög hverfa Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Icelandair tekur litáíska vél á leigu Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Máli Alcoa gegn Eimskip vísað frá Icelandair hefur flug til Qaqortoq Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Sjá meira