Haraldur Flosi vill loka á arðgreiðslur Þorbjörn Þórðarson skrifar 25. ágúst 2010 12:00 Haraldur Flosi Tryggvason, stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur. Hann segist ekki sjá hvernig fyrirtækið eigi að geta greitt eiganda sínum, Reykjavíkurborg, arð miðað við núverandi aðstæður.
Haraldur Flosi Tryggvason, stjórnarformaður Orkuveitunnar, vill endurskoða stefnu um arðgreiðslur Orkuveitunnar til eiganda síns, Reykjavíkurborgar. Hann segir hækkun gjaldskrár ekki vera til að geta greitt arð heldur svo Orkuveitan geti mætt skuldbindingum sínum. Eftir kosningar í vor var fyrst greint frá því að hækka þyrfti gjaldskrá hjá Orkuveitunni. Voru þær skýringar gefnar að ástæðan væri fyrst og fremst markmið fimm ára áætlunar um fjárþörf fyrirtækisins en sú áætlun miðast við fimm prósenta arðsemi og arðgreiðslur í samræmi við það til eigandans, Reykjavíkurborgar. Fyrst var greint frá því í byrjun júní að hugsanlega þyrfti að hækka gjaldskrána og var rætt um reykvískir skattgreiðendur, hinir eiginlegu eigendur fyrirtækisins, þyrftu að mæta 37 prósenta hækkun heita vatnsins. Nýr meirihluti Samfylkingar og Besta flokksins í stjórn Orkuveitunnar hefur ekki gefið út nákvæmlega hversu mikið gjaldskráin muni hækka, en rætt hefur verið um tveggja stafa tölu í þeim efnum. Í gær var svo greint frá því að gjaldskráin myndi hækka um tíu til tuttugu prósent. Á síðasta aðalfundi Orkuveitunnar var samþykkt frumvarp sem gerði ráð fyrir arðgreiðslu til borgarinnar. Haraldur Flosi Tryggvason, stjórnarformaður Orkuveitunnar, segir í samtali við fréttastofu að kanna verði hvort forsendur séu fyrir slíku. Hann segist ekki skilja hvernig Orkuveitan eigi að geta greitt arð miðað við hvernig fjárhagsstaða fyrirtækisins sé núna. Niðurskurður sé framundan og við þær aðstæður sé erfitt að sjá fyrir sér arðgreiðslur. Hann segist gera ráð fyrir að boða verði til aukaaðalfundar til að breyta samþykktum Orkuveitunnar ef komast eigi hjá arðgreiðslum til borgarinnar. Hvorki náðist í þá Dag B. Eggertsson, formann borgarráðs og Jón Gnarr, borgarstjóra, í morgun, til að fá svör við því hver afstaða kjörinna fulltrúa meirihlutans væri til þess að hverfa frá arðgreiðslum.
Tengdar fréttir Gjaldskrárhækkanir OR ná ekki til stóriðjunnar Stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur sér fyrir sér verulegar gjaldskrárhækkanir til að mæta erfiðri rekstrarstöðu fyrirtækisins. Hækkunin á ekki að ná til stóriðju, þar sem orkuverð til hennar er bundið samningum 23. ágúst 2010 13:05 Stórkostlegar gjaldskrárhækkanir óhjákvæmilegar hjá OR Á seinni hluta síðasta kjörtímabils virðist hafa ríkt þögult þverpólitískt samkomulag í borgarstjórn Reykjavíkur um að ýta vandamálum Orkuveitu Reykjavíkur fram yfir kosningar. Nú er nýr meirihluti í borginni að láta gera úttekt á gríðarlega erfiðri stöðu fyrirtækisins. 15. júlí 2010 08:00 Útilokar ekki frekari uppsagnir Haraldur Flosi Tryggvason, stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavikur, útilokar ekki frekari uppsagnir starfsfólks hjá Orkuveitu Reykjavíkur. Hann segir að 18. ágúst 2010 11:51 Skuldir Orkuveitunnar tífaldast á tíu árum Skuldir Orkuveitu Reykjavíkur hafa tífaldast á innan við áratug. Allir flokkar í borgarstjórn hafa átt fulltrúa í meirihluta stjórnar Orkuveitunnar á þessum tíma, en fimm af sex stjórnarformönnum eru úr sjálfstæðis- og framsóknarflokki. 23. ágúst 2010 18:41 Skuldir borgarinnar 360 prósent af árstekjum Skuldir Reykjavíkurborgar nema 360 prósentum af árstekjum borgarinnar. Ef hugmyndir að nýjum sveitarstjórnarlögum verða að veruleika mega sveitarfélög ekki skuldsetja sig meira en sem nemur 150 prósentum af árstekjum þeirra. 18. ágúst 2010 18:30 Mest lesið Kaldvík fær enn frekari frest Viðskipti innlent Níu systkini, móðir um tvítugt og símtalið sem ekkert foreldri vill fá Atvinnulíf Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Viðskipti innlent 330 þúsund ársreikningum síðar er starfið enn jafn skemmtilegt Framúrskarandi fyrirtæki Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Viðskipti innlent Eigin samastaður í Reykjavík án þess að kaupa heila íbúð Samstarf Núna er hægt að framvísa lófanum til að komast í ræktina Neytendur Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins Viðskipti innlent ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Viðskipti innlent Opna World Class í sömu götu og Reebok Fitness Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Sjá meira
Gjaldskrárhækkanir OR ná ekki til stóriðjunnar Stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur sér fyrir sér verulegar gjaldskrárhækkanir til að mæta erfiðri rekstrarstöðu fyrirtækisins. Hækkunin á ekki að ná til stóriðju, þar sem orkuverð til hennar er bundið samningum 23. ágúst 2010 13:05
Stórkostlegar gjaldskrárhækkanir óhjákvæmilegar hjá OR Á seinni hluta síðasta kjörtímabils virðist hafa ríkt þögult þverpólitískt samkomulag í borgarstjórn Reykjavíkur um að ýta vandamálum Orkuveitu Reykjavíkur fram yfir kosningar. Nú er nýr meirihluti í borginni að láta gera úttekt á gríðarlega erfiðri stöðu fyrirtækisins. 15. júlí 2010 08:00
Útilokar ekki frekari uppsagnir Haraldur Flosi Tryggvason, stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavikur, útilokar ekki frekari uppsagnir starfsfólks hjá Orkuveitu Reykjavíkur. Hann segir að 18. ágúst 2010 11:51
Skuldir Orkuveitunnar tífaldast á tíu árum Skuldir Orkuveitu Reykjavíkur hafa tífaldast á innan við áratug. Allir flokkar í borgarstjórn hafa átt fulltrúa í meirihluta stjórnar Orkuveitunnar á þessum tíma, en fimm af sex stjórnarformönnum eru úr sjálfstæðis- og framsóknarflokki. 23. ágúst 2010 18:41
Skuldir borgarinnar 360 prósent af árstekjum Skuldir Reykjavíkurborgar nema 360 prósentum af árstekjum borgarinnar. Ef hugmyndir að nýjum sveitarstjórnarlögum verða að veruleika mega sveitarfélög ekki skuldsetja sig meira en sem nemur 150 prósentum af árstekjum þeirra. 18. ágúst 2010 18:30