Greining reiknar með stýrivaxtalækkun 26. janúar 2010 11:22
Lækkun vísitölu neysluverðs nú eykur líkur á því að stýrivextir Seðlabankans verði lækkaðir á morgun. Peningastefnunefnd bankans fundar nú í dag og mun tilkynna á morgun um ákvörðun sína.Þetta kemur fram í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að greiningin reikni með því að nefndin ákveði að lækka vexti bankans lítillega, og þá á þann veg að vextir á viðskiptareikningum innlánsstofnana lækki um 0,25 prósentur í 8,25% en vextir á viku veðlánum (hinir hefðbundnu stýrivextir) um 0,5 prósentur í 9,5%.„Þetta er breyting frá okkar fyrri spá en fyrir birtingu vísitölu neysluverðs í morgun reiknuðum við með því að peningastefnunefndin myndi halda stýrivöxtum bankans óbreyttum á morgun," segir í Morgunkorninu.Ennfremur segir að í yfirlýsingu peningastefnunefndarinnar vegna ákvörðunar hennar 9. desember síðastliðinn kemur fram að haldist gengi krónunnar stöðugt eða styrkist, og verðbólga hjaðnar eins og spáð er, ættu forsendur fyrir frekari slökun peningalegs aðhalds að vera áfram til staðar. Nú hefur verðbólgan hjaðnað umtalsvert frá síðustu vaxtaákvörðun og gengi krónunnar haldist nokkuð stöðugt. Því virðist sem þau tvö skilyrði sem peningastefnunefndin setur fyrir frekari slökun peningalegs aðhalds vera til staðar.Þegar peningastefnunefndin gaf út yfirlýsingu sína í desemberbyrjun var verðbólgan 8,6%. Nú er hún 6,6%. Hluti af verðbólgunni er bein afleiðing af hækkun óbeinna skatta sem peningastefnunefndin mun líta framhjá við ákvörðun sína. Ef litið er á verðbólguna samkvæmt fastskattavísitölunni þá hefur verðbólgan þannig mælt farið úr 7,7% í 5,2% frá síðasta vaxtaákvörðunarfundi peningastefnunefndarinnar.„Þessu til viðbótar eru vísbendingar um að framleiðsluslakinn í hagkerfinu fari vaxandi, og er samdráttur landsframleiðslu umtalsverður og atvinnuleysi að aukast enn. Þannig ætti verðbólgan að hjaðna enn á næstunni og reiknum við með því að sú skoðun verði sett fram í nýrri efnahagsspá Seðlabankans sem birt verður á morgun", segir í Morgunkorninu.
Mest lesið „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Live verður Lifa Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira