Skoðun

„Við styðjum ein hjúskaparlög á Íslandi“

Prestastefna er biskupi til ráðuneytis í kenningarlegum efnum og kölluð saman á hverju ári. Á Prestastefnunni í Vídalínskirkju 27.-29. apríl 2010 var lögð fram tillaga fjölmargra presta og guðfræðinga við lagafrumvarp dóms- og mannréttindamálaráðherra um ein hjúskaparlög á Íslandi. Tillagan var svohljóðandi: "Prestastefna haldin í Vídalínskirkju 27.-29. apríl 2010 lýsir yfir stuðningi við lagafrumvarp dóms- og mannréttindamálaráðherra um ein hjúskaparlög á Íslandi. Prestastefna telur íslensku þjóðkirkjuna í stakk búna til að stíga þetta skref með ríkisvaldinu í ljósi ítarlegrar guðfræðilegrar umfjöllunar síðustu ára á kirkjulegum vettvangi um kirkju, kynhneigð og hjónaband."

Prestastefnan samþykkti með naumum meirihluta að vísa málinu til biskups og kenningarnefndar en taka ekki efnislega afstöðu til tillögunnar í atkvæðagreiðslu. Prestastefna hafnaði ekki tillögunni og flutningsmennirnir drógu hana ekki til baka. Það er því hlutverk biskups og kenningarnefndar að taka afstöðu til frumvarpsins um ein hjúskaparlög á Íslandi á grundvelli tillagna og umræðu á Prestastefnu. Við undirrituð sem erum prestar, guðfræðingar og djáknar í íslensku Þjóðkirkjunni og kristnum fríkirkjum á Íslandi viljum árétta stuðning okkar við þetta frumvarp og ósk okkar um að íslenska þjóðkirkjan taki að sér að gefa saman pör af sama kyni í hjónaband.

Ríkisstjórn Íslands einsetti sér í stjórnmálasáttmála 10. maí 2009 að vinna að setningu einna hjúskaparlaga á kjörtímabilinu. Málið nýtur stuðnings þingmanna úr öllum flokkum og flokkar í stjórnarandstöðu hafa líka lýst stuðningi við málið í flokkssamþykktum. Það er því traustur þingmeirihluti fyrir einum hjúskaparlögum á Alþingi. Með frumvarpi dómsmálaráðherra um breytingar á hjúskaparlögum og fleiri lögum og um brottfall laga um staðfesta samvist (ein hjúskaparlög) sem lagt hefur verið fyrir Alþingi á 138. löggjafarþingi vill þingið leggja áherslu á jafnan rétt einstaklinga til að ganga í hjónaband óháð kyni eða kynhneigð og vísar til sambærilegrar einföldunar á hjúskaparlögum í Hollandi, Belgíu, Spáni, Kanada, Noregi og í Svíþjóð. Samkvæmt frumvarpinu er gert ráð fyrir því að lögin taki gildi 27. júní næstkomandi og eftir það gefist trúfélögum kostur á að vígslumenn þeirra taki að sér að gifta pör af sama kyni.

Sænska kirkjan hefur þegar samþykkt að gefa samkynhneigð pör saman í hjónaband. Við teljum mikilvægt að þjóðkirkjan fylgi því fordæmi, hafi áfram vígsluvald og stuðli þannig að áframhaldandi samfylgd kirkju og þjóðar í hjúskaparmálum. Við höfum opnað heimasíðuna www.einhjuskaparlog.is með frekari upplýsingum um þetta mikilvæga baráttumál. Við teljum að á grundvelli þeirrar vönduðu guðfræðiumræðu sem farið hefur fram á kirkjulegum vettvangi um kynhneigð og hjónaband á undanförnum fjórtán árum sé ekkert því til fyrirstöðu að vígslumönnum verði heimilað að gefa saman samkynhneigð pör í hjónaband og að þjóðkirkjan feti þannig í fótspor systurkirkna sinna.

1. Sr. Aðalsteinn Þorvaldsson, sóknarprestur Setbergsprestakalli

2. Sr. Arna Grétarsdóttir, sérþjónustuprestur, Noregi

3. Dr. Arnfríður Guðmundsdóttir, prófessor og prestur, Háskóla Íslands

4. Sr. Auður Inga Einarsdóttir, sérþjónustuprestur, heimilisprestur á Grund

5. Sr. Auður Eir Vilhjálmsdóttir, emerita, Kópavogi

6. Sr. Ágúst Einarsson, sérþjónustuprestur, Svíþjóð

7. Ármann Hákon Gunnarsson, djákni, Garðasókn

8. Sr. Ása Björk Ólafsdóttir, prestur, Reykjavík

9. Sr. Baldur Kristjánsson, sóknarprestur, Þorlákshafnarprestakalli

10. Sr. Bjarni Karlsson, sóknarprestur, Laugarnesprestakalli

11. Sr. Bragi Skúlason, sérþjónustuprestur, Landspítala- Háskólasjúkrahúsi

12. Sr. Bolli Pétur Bollason, sóknarprestur, Laufásprestakalli

13. Bryndís Valbjarnardóttir, guðfræðingur og útfararstjóri, Reykjavík

14. Sr. Carlos Ari Ferrer, prestur og kennari, Reykjavík

15. Sr. Cecil Haraldsson, sóknarprestur Seyðisfjarðarprestakalli

16. Sr. Dalla Þórðardóttir, prófastur, Húnavatns- og Skagafjarðarprófastdæmi

17. Sr. Einar Eyjólfsson, prestur Fríkirkjunnar í Hafnarfirði

18. Sr. Elína Hrund Kristjánsdóttir, sóknarprestur, Reykhólaprestakalli

19. Sr. Guðbjörg Arnardóttir, sóknarprestur, Oddaprestakalli

20. Sr. Guðmundur Örn Jónsson, prestur, Vestmannaeyjaprestakalli

21. Sr. Guðný Hallgrímsdóttir, sérþjónustuprestur, prestur fatlaðra, Reykjavík

22. Sr. Guðrún Karlsdóttir, prestur, Grafarvogsprestakalli

23. Sr. Gunnar Rúnar Matthíasson, sérþjónustuprestur, Landspítala- Háskólasjúkrahúsi

24. Gunnar Einar Steingrímsson, djákni, Grafarvogssókn

25. Gunnbjörg Óladóttir guðfræðingur og doktorsnemi, Reykjavík

26. Sr. Gylfi Jónsson, héraðsprestur Þingeyjarprófastdæmi

27. Sr. Hans Guðberg Alfreðsson, prestur, Garðaprestakalli

28. Dr. Haukur Ingi Jónasson, lektor og prestur, Háskóla Íslands

29. Sr. Hildur Eir Bolladóttir, prestur, Laugarnesprestakalli

30. Dr. Hjalti Hugason, prófessor og prestur, Guðfræðideild Háskóla Íslands

31. Sr. Hólmgrímur E. Bragason, héraðsprestur, Austfjarðaprófastdæmi

32. Hróbjartur Árnason, lektor og guðfræðingur, Háskóla Íslands

33. Sr. Ingileif Malmberg, sérþjónustuprestur Landspítala- Háskólasjúkrahúsi

34. Sr. Ingólfur Hartvigsson, sóknarprestur Kirkjubæjarprestakalli

35. Sr. Íris Kristjánsdóttir, sóknarprestur, Hjallaprestakalli

36. Jóhanna Magnúsdóttir, guðfræðingur og aðstoðarskólastjóri

37. Sr. Jón Ásgeir Sigurvinsson, guðfræðingur og doktorsnemi, Borgarnesi

38. Sr. Jón Helgi Þórarinsson, sóknarprestur, Langholtsprestakalli

39. Sr. Jóna Hrönn Bolladóttir, sóknarprestur Garðaprestakalli

40. Sr. Jóna Lovísa Jónsdóttir, skólaprestur og framkvæmdastjóri Æskulýðssambands Þjóðkirkjunnar.

41. Karítas Kristjánsdóttir, guðfræðingur, Kirkjubæjarklaustri

42. Sr. Karl Valgarður Matthíasson vímuvarnaprestur Þjóðkirkjunnar

43. Sr. Kjartan Örn Sigurbjörnsson, sérþjónustuprestur Landspítala- Háskólasjúkrahúsi

44. Sr. Kristinn Jens Sigurþórsson, sóknarprestur, Saurbæjarprestakalli

45. Kristín Sigríður Garðarsdóttir, djákni og áfengisráðgjafi, Kópavogi

46. Sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir, héraðsprestur Kjalarnesprófastdæmi

47. Sr. Lára G. Oddsdóttir, sóknarprestur, Valþjófsstaðarprestakalli

48. Sr. Lena Rós Matthíasdóttir, prestur Grafarvogsprestakalli

49. Sr. Magnús Erlingsson, sóknarprestur, Ísafjarðarprestakalli

50. Margrét Ólöf Magnúsdóttir, djákni, Árbæjarsókn

51. Ninna Sif Svavarsdóttir guðfræðingur og doktorsnemi, Hveragerði

52. Sr. Óskar Hafsteinn Óskarsson, prestur Selfossprestakalli

53. Rósa Kristjánsdóttir, djákni Landspítala- Háskólasjúkrahúsi

54. Sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir, prestur, Reykjavík

55. Sr. Pétur Þorsteinsson, prestur Óháða safnaðarins í Reykjavík

56. Sr. Sigfinnur Þorleifsson, sérþjónustuprestur Landspítala- Háskólasjúkrahúsi

57. Sr. Sigfús Kristjánsson, prestur, Hjallaprestakalli

58. Sr. Sjöfn Mueller Thor, sóknarprestur Reykhólaprestakalli

59. Dr. Sigríður Guðmarsdóttir, sóknarprestur, Grafarholtsprestakalli

60. Sr. Sigríður Gunnarsdóttir, sóknarprestur, Sauðárkróksprestakalli

61. Sr. Sigríður Kristín Helgadóttir, prestur Fríkirkjunnar í Hafnarfirði

62. Sr. Sigríður Óladóttir, sóknarprestur Hólmavíkurprestakalli

63. Sr. Sigrún Óskarsdóttir, prestur, Árbæjarprestakalli

64. Sr. Sigurður Grétar Helgason, sóknarprestur Seltjarnarnesprestakalli

65. Dr. Sigurður Árni Þórðarson, prestur Nesprestakalli

66. Sr. Skúli Sigurður Ólafsson, sóknarprestur, Keflavíkurprestakalli

67. Sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir, sóknarprestur, Möðruvallaprestakalli

68. Dr. Sólveig Anna Bóasdóttir, dósent og guðfræðingur, Háskóla Íslands

69. Svala Sigríður Thomsen,djákni á Grund

70. Sr. Svanhildur Blöndal, prestur í Hrafnistu í Reykjavík og á Vífilsstöðum

71. Sveinbjörg Pálsdóttir, guðfræðingur og stjórnsýsluráðgjafi, Reykjavík

72. Sr. Svavar Alfreð Jónsson, sóknarprestur, Akureyrarprestakalli

73. Sr. Toshiki Toma, sérþjónustuprestur, prestur innflytjenda

74. Sr. Ursula Árnadóttir, sóknarprestur, Skagastrandarprestakalli

75. Valgerður Hjartardóttir, djákni, hjúkrunar- og ráðgjafarþjónustunni Karítas

76. Sr. Vigfús Bjarni Albertsson, sérþjónustuprestur Landspítala- Háskólasjúkrahúsi

77. Sr. Vigfús Þór Árnason, sóknarprestur, Grafarvogsprestakalli

78. Sr. Yrsa Þórðardóttir, prestur, Digranesprestakalli

79. Sr. Þór Hauksson, sóknarprestur, Árbæjarprestakalli

80. Sr. Þórhallur Heimisson, sóknarprestur, Hafnarfjarðarprestakalli

81. Sr. Þórir Stephensen, fyrrverandi dómkirkjuprestur

82. Sr. Örn Bárður Jónsson, sóknarprestur, Nesprestakalli








Skoðun

Skoðun

Um dánaraðstoð

Steinunn Þórðardóttir,Oddur Steinarsson,Thelma Kristinsdóttir,Katrín Ragna Kemp,Magdalena Ásgeirsdóttir,Margrét Ólafía Tómasdóttir,Ragnar Freyr Ingvarsson,Teitur Ari Theodórsson,Theódór Skúli Sigurðsson skrifar

Skoðun

Hún

Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar

Sjá meira


×