Kreppan hefur mikil áhrif á vinnumarkaðinum 13. janúar 2010 12:14
Áhrif kreppunnar sjást vel í hinum ýmsu vinnumarkaðstölum þessa daganna. Þannig hefur atvinnuþátttaka minnkað, atvinnuleysi aukist, fjöldi starfandi dregist saman og vinnustundum fækkað. Þetta kemur fram í niðurstöðum úr vinnumarkaðskönnun Hagstofunnar sem birt var nú í morgun.Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að á 4. ársfjórðungi síðasta árs voru 166.500 starfandi í landinu sem er 8.500 færri en voru starfandi á sama ársfjórðungi 2008. Fólk hefur því dregið sig út af íslenskum vinnumarkaði í kreppunni. Ljóst er að margir hafa orðið á að taka á sig skerðingu á starfshlutfalli en á meðal þeirra sem eru starfandi hefur orðið nokkur fjölgun í hópi þeirra sem eru í hlutastarfi en á móti hefur þeim fækkað umtalsvert sem eru í fullu starfi.Þannig voru 45.500 starfandi í hlutastarfi á 4. ársfjórðungi 2009 en höfðu verið 44.100 á sama tíma 2008. Á sama tímabili fór fjöldi starfandi í fullu starfi úr 130.900 í 121.000. Miðað við árið í 2009 heild þá hefur fjöldi starfandi dregist saman um 10.800 frá fyrra ári og þar af hefur þeim fjölgað um 2.500 sem eru í hlutastarfi en fækkað um 13.400 sem eru í fullu starfi.Jafnframt hefur vinnutíminn styst. Þannig var vinnutíminn að meðaltali 38,9 stundir á viku en hafði verið 39,3 stundir á sama ársfjórðungi 2008. Á tímabilinu styttist vinnutíminn um 0,4 stundir hjá þeim sem eru í fullu starfi en á hinn bóginn lengdist hann um 1,3 stundir hjá þeim sem eru í hlutastarfi. Á árinu í heild var meðalfjöldi vinnustunda 39,6 sem er 2 stundum styttri en árið á undan.Á 4. ársfjórðungi 2009 mældist atvinnuþátttaka 80,3% en á sama tíma árið 2008 mældist hún 81,5%. Á sama tímabili hefur vinnuafli fækkað um 3.900 og má ætla að þar gæti m.a. flutnings fólks úr landi eða jafnvel þeirra sem farið hafa í nám eftir atvinnumissi. Á árinu öllu mældist atvinnuþátttakan 80,9% en hafði verið 82,6% árið á undan.Þess má geta að þrátt fyrir að atvinnuþátttakan hafi minnkað hér á landi þá er hún enn mikil í samanburði við löndin umhverfis okkur. T.a.m. mældist atvinnuþátttakan, líkt og áður, sú mesta á 3. ársfjórðungi 2009 hér á landi meðal landa innan evrópska efnahagsvæðisins samkvæmt gögnum hagstofu Evrópusambandsins.
Mest lesið „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Fleiri fréttir Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Sjá meira