Viðskipti innlent

Yfirtaka kröfuhafa á Atorku rædd á hluthafafundi

Á dagskrá hluthafafundar Atorku í næstu viku er einungis eitt mál til umræðu, eða tillaga stjórnar Atorku Group hf. um að núverandi hlutafé í félaginu verði fært niður að fullu. Samhliða því að samþykkt verði að hækka hlutafé að nýju og að kröfuhafar félagsins skrái sig fyrir nýju hlutafé.

Í tilkynningu til kauphallarinnar segir að þetta sé í samræmi við nauðasamning Atorku Group hf. við kröfuhafa, samþykktan á fundi kröfuhafa 10. desember 2009 og staðfestan af Héraðsdómi Reykjaness 7. janúar 2010.

Stjórn Atorku Group hf. boðar til hluthafafundar félagsins föstudaginn 22. janúar 2010 kl. 10:00 á Grand Hótel. Dagskrá fundarins og tillaga stjórnar félagsins í samræmi við framangreint munu liggja frammi til sýnis fyrir hluthafa á skrifstofu félagsins frá og með 15. janúar 2010.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×