Lögmannsstofan Lex vill milljarð vegna innheimtu á kröfu fyrir Seðlabankann Karen Kjartansdóttir skrifar 14. janúar 2010 18:30
Lögmannsstofan Lex hefur nú krafist eins milljarðs króna þóknunar vegna innheimtu á kröfu fyrir Seðlabanka Íslands á hendur Sparisjóðabankanum, samkvæmt upplýsingum fréttastofu, en Lex er lögmannsstofa Seðlabanka Íslands. Sparisjóðabankinn er í slitameðferð en bankinn skuldar Seðlabankanum 180 milljarða vegna svokallaðra endurhverfra viðskipta. Um er að ræða hálft prósent af heildarskuldinni en síðasta fylgiskjalið í kröfu Seðlabankans var einmitt gjaldskrá Lex, þar sem hin háa þóknun var rökstudd. Samkvæmt heimildum mun Sparisjóðabankinn mótmæla þessari kröfu. Sparisjóðabankinn stundaði svokölluð endurhverf viðskipti við Seðlabanka Íslands, í umræðunni hafa þessi viðskipti einnig gengist undir nafninu ástarbréf. Þau gengu þannig fyrir sig að minni fjármálafyrirtæki fengu lánaða peninga hjá Seðlabanka Íslands gegn veðum í stóru viðskiptabönkunum, fjármagnið frá Seðlabankanum lánuðu fyrirtækin síðan stóru viðskiptabönkunum aftur. Í kjölfar hruns íslensku bankanna sat Seðlabankinn uppi með ónýt veð, en veðin sem hann tók voru skuldabréf sem voru verðlaus. Eftir stendur að Seðlabankinn er nú að reyna að innheimta skuldirnar og falið lögmannsstofunni að sinna því. Helgi Jóhannesson, hæstaréttarlögmaður á Lex, segir að í þóknunni séu gerðar ítrustu kröfur. Upphæð þóknunarinnar sé miðuð við gjaldskrá og raunar sé upphæðin aðeins um tólf prósent af því sem hún gæti verið samkvæmt gjaldskrá sé að ræða jafn háan höfuðstól þurfi að reikna verð niður. Semsagt, stofan gæti innheimt átta milljarða. Helgi bendir jafnframt á að ekki sé búist við því að nema brot af upphæðin fáist innheimt og líklegt að þóknunin verði lægri á endanum.
Mest lesið „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Live verður Lifa Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira