Greining MP Banka spáir hógværri stýrivaxtalækkun 14. mars 2010 10:51
Greining MP Banka telur líklegast er að peningastefnunefnd Seðlabankans ákveði að halda áfram að lækka vexti í bili, en fari þó að öllu með gát vegna aukinnar óvissu um efnahagsáætlunina og erlenda fjármögnun. Því megi reikna með 25 punkta (0,25 prósentustiga) lækkun stýrivaxta á miðvikudaginn kemur. Fjallað er um málið í Markaðsvísi greiningarinnar. Þar segir að heldur brösuglega hafi gengið að vinna eftir efnahagsáætlun Alþjóðagjaldeyrissjóðsins hingað til. Á einu og hálfu ári er hún komin rúmt ár á eftir áætlun og á Seðlabankanum hefur mátt skilja að í besta falli séu nokkrir mánuðir í að næsta skref til afnáms hafta verði stigið. Ef Seðlabankinn vinnur enn samkvæmt því að lausn á vandamálunum við framgöngu efnahagsáætlunarinnar séu rétt handan við hornið þá er mikilvægast fyrir hann að tryggja að raunvaxtamunur við útlönd sé nægjanlegur til þess að halda aftur af útflæði fjármagns og frekara hruni krónunnar við afnám gjaldeyrishafta. Stýrivaxtamunur gagnvart helstu myntum hefur lækkað nokkuð síðustu mánuði. Þótt hann sé verulegur ennþá hefur hann ekki verið lægri gagnvart pundi frá því í mars 2008, gagnvart Bandaríkjadal frá því í september 2007 og gagnvart evru síðan í maí 2006. Skuldatryggingarálag ríkisins til 5 ára er nú um 415 punktar sem er nokkru hærra en það var undir lok síðasta árs. Aukin óvissa um erlenda fjármögnun og framvindu efnahagsáætlunarinnar bendir til þess að óvarlegt sé að fara geyst í vaxtalækkanir að sinni, að minnsta kosti ef það er á dagskrá að afnema gjaldeyrishöft, en reynslan hefur kennt okkur að gjaldeyrishöft geta orðið langvinn og skaðleg þótt þeim sé komið á sem tímabundinni lausn á skammtíma vanda. Ef Seðlabankinn er kominn á þá skoðun að efnahagsáætlunin sé það langt á eftir áætlun að afnám hafta verði ekki á dagskrá næstu árin er tímabært að miða vaxtastigið við innlent efnahagsástand. Þótt ákveðin hætta á kostnaðarverðbóglu sé til staðar og óvissa sé um niðurstöður kjarasamninga síðar á árinu, þá er vaxtastigið nú fullhátt. Þó er mikilvægt að vextir hvetji til sparnaðar sem stendur því að við munum ekki eyða okkur út úr kreppunni. Hún er einmitt afleiðing eyðslu og lítils sparnaðar undanfarin ár. Einnig er mikilvægt að raunávöxtunarkrafa sé jákvæði svo að ekki verði farið út í óarðbærar fjárfestingar sem tímabundna reddingu á atvinnuástandinu. Slíkt tefur aðeins fyrir eðlilegri uppbyggingu og beinir framleiðslunni á rangar brautir. Engu að síður er ljóst að útfrá innlendum efnahags- og verðbólguhorfum eru stýrivextir full háir sem stendur, að er því segir í Markaðsvísinum.
Mest lesið Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Viðskipti innlent Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Viðskipti innlent Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Viðskipti innlent Tekur við sem forstjóri S4S Viðskipti innlent Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Neytendur Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Viðskipti innlent Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Viðskipti innlent „Alltaf að líða þannig í vinnunni þinni að þú skiptir máli“ Atvinnulíf Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Viðskipti innlent Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Viðskipti innlent Fleiri fréttir Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Sjá meira