Landic Property heitir Reitir 25. janúar 2010 03:00 Viðar Þorkelsson Viðar Þorkelsson er forstjóri Reita. Félagið hét áður Landic Property Ísland og þar áður Fasteignafélagið Stoðir. Mynd/Reitir
Skipt hefur verið um nafn á fasteignafélaginu Landic Property Ísland. Það heitir nú Reitir fasteignafélag. „Síðastliðið ár unnu stjórnendur móðurfélagsins Landic Property hf., í samvinnu við kröfuhafa, að því að verja íslenska starfsemi félagsins og losa um erlendar eignir og veðskuldir en í því ferli hefur meðal annars verið gengið frá sölu á eignasöfnum félagsins í Danmörku og Finnlandi,“ segir í tilkynningu félagsins. „Rekstur íslenska fasteignasafnsins er nú tryggður og stendur traustum fótum.“ Vegna þess að félagið starfar eftirleiðis einvörðungu á innlendum markaði var ákveðið að taka upp íslenskt nafn. „Reitir verða sjálfstætt félag í meirihlutaeigu íslenskra banka. Stjórnendur Landic Property hf. sömdu við NBI (Landsbankann), Arion Banka, Íslandsbanka, Glitni, Haf Funding og Byr um fjárhagslega endurskipulagningu íslenska fasteignafélagsins og dótturfélaga.“ Fasteignasafn Reita samanstendur af 130 fasteignum, einkum verslunar- og skrifstofuhúsnæði miðsvæðis í Reykjavík. Félagið er sagt stærsta þjónustufyrirtæki landsins á sviði fasteignareksturs, en meðal eigna þess eru Kringlan og Hilton Reykjavík Nordica, Kauphallarhúsið, Holtagarðar og „margar af perlum íslenskrar byggingarsögu sem staðsettar eru í miðbænum“. Eignir félagsins eru sagðar yfir 90 milljarða króna virði. - óká
Mest lesið Trúa varla að tollahækkanirnar séu að skella á Viðskipti innlent Vonbrigði með makrílinn en síldin og loðnan veki von Viðskipti innlent Ráðin framkvæmdastjóri Magio – viðburðasmiðju Viðskipti innlent Ísland klemmist á milli í alþjóðlegu tollastríði Viðskipti innlent Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Alaska Airlines hefur daglegt flug til Keflavíkur næsta sumar Viðskipti innlent Stærsti olíu- og gasfundur olíurisa í 25 ár Viðskipti erlent Þegar þreyttir starfsmenn mæta til vinnu eftir frí Atvinnulíf Ferðum Play til London, Parísar og Berlínar „sjálfhætt“ Viðskipti innlent Vefur og app Íslandsbanka lágu niðri Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ísland klemmist á milli í alþjóðlegu tollastríði Vonbrigði með makrílinn en síldin og loðnan veki von Ráðin framkvæmdastjóri Magio – viðburðasmiðju Trúa varla að tollahækkanirnar séu að skella á Alaska Airlines hefur daglegt flug til Keflavíkur næsta sumar Vefur og app Íslandsbanka lágu niðri Tímabundin dreifing á sjónvarpsefni Sýnar hjá Símanum Hækkun tolla eins og þruma úr heiðskíru lofti Forstjóraskipti hjá Ice-Group Kísiltollar gætu vel endað fyrir gerðardómi Hvalur hf. stefnir íslenska ríkinu Arion hagnaðist um tíu milljarða á öðrum fjórðungi Ferðum Play til London, Parísar og Berlínar „sjálfhætt“ Festi hagnast umfram væntingar Þota Play komin úr viðgerð eftir skemmdir vegna hagléls Evrópa verði upp á Kína komin verði af tollunum Sigurður viðskiptastjóri innviðalausna hjá Ofar Hagnaður minnkar um 38 prósent og arðgreiðsla óákveðin Funda með ráðherra vegna tollanna: „Ég ætla ekki að setjast í neitt dómarasæti“ Á ég að greiða inn á lánið eða spara? Loksins, mathöllin og fleiri staðir fá nýja rekstraraðila „Við erum að bæta við atvinnustoð í samfélaginu“ Kristján og Leó kaupa Landsbankahúsið á tæpa þrjá milljarða Sjómönnum sagt upp: Skipulagsbreytingar vegna veiðigjalda Vaxtalækkun í ágúst sé nánast útilokuð Opnuðu loks Hygge eftir 245 daga bið Verðbólgan hjaðnar á ný Gáfust upp á Facebook og opna verslun fyrir notaðar íþróttavörur Endurskipuleggja reksturinn „í vinsemd og virðingu“ Tekjur jukust um helming milli ára Sjá meira