Askan veldur gífurlegu tapi hjá flugfélögum og flugvöllum 15. apríl 2010 13:50 „Það er enginn sem pantar sér flug fyrir morgundaginn í dag," segir Christiansen. „Þannig að þótt allt fari á fullt á morgun mun skorta farþega í þau flug."
Askan úr Eyjafjallajökli mun valda gífurlegu tapi hjá flugfélögum og flugvöllum í norðurhluta Evrópu og víðar um heiminn. Þess sjást m.a. merki í kauphöllum þessa stundina og sem dæmi má nefna að hluti í SAS hafa fallið um 7% í kauphöllinni í Kaupmannahöfn í dag.Fjallað er um málið á börsen.dk. Þar segir að ef askan úr Eyjafjallajökli loki flugvöllum í meira en einn dag missi þeir um leið 3-4% af mánaðartekjum sínum.„Flugvellirnir tapa tekjum frá bæði farþegum og flugfélögum og þetta getur orðið dýrkeypt fyrir báða aðila," segir Ole Kirchert Christiansen forstjóri Travel Brooker. Hann bætir því við að eftir að askan hverfur taki a.m.k. einn dag að koma starfsemi flugfélaganna og vallana í samt lag á ný.Fyrir utan tekjutap af farþegum þurfa flugfélögin einnig að glíma við margvíslegan aukakostnað vegna öskunnar. Þau þurfa að skaffa farþegum sínum og áhöfnum hótelgistingar. Þar að auki kostar það skildingin að hafa flugvélar standandi aðgerðarlausar á flugvöllum þegar áætlanir gera ráð fyrir að þær séu í notkun 10 til 12 tíma á dag.„Það er enginn sem pantar sér flug fyrir morgundaginn í dag," segir Christiansen. „Þannig að þótt allt fari á fullt á morgun mun skorta farþega í þau flug."
Eldgos og jarðhræringar Gos á Fimmvörðuhálsi Mest lesið Z-kynslóðin sem foreldrar byrjuð að breyta leikreglunum Atvinnulíf „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Viðskipti innlent Miklar hækkanir í lágvöruverðsverslunum í byrjun árs Neytendur Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Viðskipti innlent Ísland eins og stefnumótasíða í sjávarútvegi Atvinnulíf Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Viðskipti innlent Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Samstarf Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Viðskipti innlent Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Viðskipti innlent Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira