Viðskipti innlent

Náið samstarf um rannsóknir á gjaldeyrisviðskiptabrotum

Efnahagsbrotadeild Ríkislögreglustjóra, Seðlabankinn og Fjármálaeftirlitið hafa átt í viðamiklu samstarfi í tengslum við rannsóknir á brotum á gjaldeyrishöftum og lögum um gjaldeyrisviðskipti. Fjórir fyrrverandi starfsmenn Straums eru í haldi lögreglu vegna málsins.

Að undangenginni skoðun Seðlabankans og rannsókn Fjármálaeftirlitsins var málið kært til ríkislögreglustjóra, í nóvember í fyrra.Rannsókn málsins beinist að fyrirtæki að nafni Aserta sem er skráð í Svíþjóð. Grunsemdir eru um að félagið hafi tekið við erlendum gjaldeyri þar, skipt honum á aflandsmarkaði í íslenskar krónur og síðan flutt til Íslands, án heimildar frá Seðlabankanum. Einnig er til skoðunar hugsanlegt peningaþvætti, skattalagabrot og ekki síst hugsanleg brot þeirra sem áttu í viðskiptum við félagið.

Heildarveltan á reikningum félagsins og tengdra félaga eru rúmir 48 milljarðar, á tímabilinu sem er til rannsóknar - frá nóvember 2008 til október 2009. Fjárhæð viðskiptanna með erlendan gjaldeyri nemur 13 milljörðum króna, sem voru millifærðar frá erlendum bönkum inn á íslenska bankareikninga. Það er 7% af heildarveltu á gjaldeyrismarkaði á tímabilinu. Efnahagsbrotadeild hefur kyrrsett eignir hér og erlendis, upp á hundruði milljarða.

Eitt hundrað aðilar áttu í viðskiptum við félagið, bæði einstaklingar og fyrirtæki. Málið er eitt af 26 málum sem tilkynnt hafa verið til Fjármálaeftirlitsins en af þeim hafa sjö verið kærð til lögreglunnar. Ellefu tilkynningar eru væntanlegar á næstu dögum til Fjármálaeftirlitsins vegna þessara mála.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×