Náið samstarf um rannsóknir á gjaldeyrisviðskiptabrotum 29. janúar 2010 18:48
Efnahagsbrotadeild Ríkislögreglustjóra, Seðlabankinn og Fjármálaeftirlitið hafa átt í viðamiklu samstarfi í tengslum við rannsóknir á brotum á gjaldeyrishöftum og lögum um gjaldeyrisviðskipti. Fjórir fyrrverandi starfsmenn Straums eru í haldi lögreglu vegna málsins. Að undangenginni skoðun Seðlabankans og rannsókn Fjármálaeftirlitsins var málið kært til ríkislögreglustjóra, í nóvember í fyrra.Rannsókn málsins beinist að fyrirtæki að nafni Aserta sem er skráð í Svíþjóð. Grunsemdir eru um að félagið hafi tekið við erlendum gjaldeyri þar, skipt honum á aflandsmarkaði í íslenskar krónur og síðan flutt til Íslands, án heimildar frá Seðlabankanum. Einnig er til skoðunar hugsanlegt peningaþvætti, skattalagabrot og ekki síst hugsanleg brot þeirra sem áttu í viðskiptum við félagið. Heildarveltan á reikningum félagsins og tengdra félaga eru rúmir 48 milljarðar, á tímabilinu sem er til rannsóknar - frá nóvember 2008 til október 2009. Fjárhæð viðskiptanna með erlendan gjaldeyri nemur 13 milljörðum króna, sem voru millifærðar frá erlendum bönkum inn á íslenska bankareikninga. Það er 7% af heildarveltu á gjaldeyrismarkaði á tímabilinu. Efnahagsbrotadeild hefur kyrrsett eignir hér og erlendis, upp á hundruði milljarða. Eitt hundrað aðilar áttu í viðskiptum við félagið, bæði einstaklingar og fyrirtæki. Málið er eitt af 26 málum sem tilkynnt hafa verið til Fjármálaeftirlitsins en af þeim hafa sjö verið kærð til lögreglunnar. Ellefu tilkynningar eru væntanlegar á næstu dögum til Fjármálaeftirlitsins vegna þessara mála.
Mest lesið Lite-æðið hafi Íslendinga að fíflum Neytendur Þungmálmar flæða úr steypujárnspönnu Neytendur Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Viðskipti innlent Rammagerðin leitar nauðasamninga Viðskipti innlent Kalla inn súkkulaðbitakökur Neytendur Epli opnar nýja og glæsilega verslun í Smáralind Samstarf Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Viðskipti innlent Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Viðskipti innlent Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Viðskipti innlent Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Kristinn V. Jóhannsson er látinn Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar Sjá meira