Skiptastjóri Fons kannar riftun arðgreiðslu Þorbjörn Þórðarson skrifar 16. janúar 2010 19:00
Óskar Sigurðsson, lögmaður og skiptastjóri þrotabús Fons, er nú að skoða hvort hægt sé að rifta rúmlega fjögurra milljarða arðgreiðslu Fons til félags í eigu Pálma Haraldssonar í Lúxemborg ári fyrir bankahrun. Kröfur í þrotabú Fons nema 40 milljörðum króna. Fons, eignarhaldsfélag Pálma Haraldssonar sem nú er gjaldþrota, greiddi Pálma Haraldssyni 4,4 milljarða króna í arð árið 2007, vegna rekstrarársins 2006 þegar Fons skilaði 28 milljarða hagnaði. Greiðslan rann til félagsins Matthews Holding SA í Lúxemborg, sem var í eigu Pálma og viðskiptafélaga hans Jóhannesar Kristinssonar. Í apríl á síðasta ári, óskaði Fons eftir gjaldþrotaskiptum og kröfur í þrotabúið nema 40 milljörðum króna. Meðal stærstu kröfuhafanna eru íslenskir viðskiptabankar. Óskar Sigurðsson, skiptastjóri þrotabús Fons, sagði í samtali við fréttastofu að í skoðun væri að rifta umræddri arðgreiðslu og að niðurstöðu mætti vænta innan tveggja vikna. Hann sagði að fenginn hefði verið óháður endurskoðandi til að fara yfir málið, sem ekki væri tengdur stóru endurskoðunarskrifstofunum sem unnu fyrir Fons og tengd félög. Samkvæmt lögum um um gjaldþrotaskipti eru þeir samningar riftanlegir sem fela í sér gjafagerninga eða ótilhlýðlilega ráðstöfun fjármuna og eru gerðir allt að 24 mánuðum áður en fyrirtæki leitaði fyrst eftir heimild til greiðslustöðvunar. Hvort af riftun verði ræðst m.a að því hvort arðgreiðslan til Matthews Holding telst lögmæt samkvæmt lögum um hlutafélög og reglum um reikningsskil. Pálmi Haraldsson sagði í samtali við fréttastofu að um væri að ræða arðgreiðslu vegna innleysts hagnaðar rekstrarársins 2006. Þess vegna væri færsla vegna hans bókfærð í ársreikning fyrir árið 2007. Hann sagði að engar líkur væru á því að hægt yrði að rifta arðgreiðslunni þar sem Fons hefði verið gjaldfært félag á þeim tíma sem arðurinn var greiddur út.
Mest lesið Veldi auðugustu konu Rússlands sagt riða til falls Viðskipti erlent Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Viðskipti innlent Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Viðskipti innlent Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Viðskipti innlent Farþegar elska lopapeysur Viðskipti innlent Tollar kísilframleiðslu í Kína Viðskipti erlent Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Viðskipti innlent Kallar eftir breytingum á lífeyriskerfinu til að lækka íbúðalánavexti Viðskipti innlent Lífeyrissjóðirnir alltumlykjandi á markaðnum Viðskipti innlent Fer frá laxeldi í eldri borgara Viðskipti innlent Fleiri fréttir Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Eykur strandveiðikvótann um 964 tonn Þórunn stígur til hliðar hjá Úrvali Útsýn Gistinóttum á hótelum fækkaði milli ára Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Tvírukkaðar færslur leiðréttar Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Ekki erfitt að skila hagnaði í gósentíð hávaxtaumhverfis Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Samkeppniseftirlitið leggur blessun sína yfir samruna Brims og Lýsis Bæta við sex nýjum Airbus-vélum María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Fyrsta apótek Víkur opnað Sjá meira