Viðskipti innlent

Mikil fækkun leigusamninga milli mánaða

Heildarfjöldi leigusamninga á landinu var 840 í október 2010 og fækkar þeim um 45,9% frá september 2010 og 1,8% frá október 2009.

Þetta kemur fram á vefsíðu Þjóðskrár Íslands sem tekur saman upplýsingar um fjölda þinglýstra leigusamninga um íbúðarhúsnæði eftir landshlutum í október.

Leigusamningunum fækkar í öllum landshlutum nema Vestfjörðum. Á höfuðborgarsvæðinu er fækkunin 36% en samningum þar fækkaði úr 868 í spetember og í 555 í október. Hlutfallslega mesta fækkunin varð á Norðurlandi eða 73%. Þar fækkaði samningum úr 288 og í 77.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×