Icesave-arkitekt réð föðurbróður Hannesar Smárasonar sem Húsasmiðjuforstjóra Þorbjörn Þórðarson skrifar 15. janúar 2010 18:45
Steinþór Baldursson, stjórnarformaður Húsasmiðjunnar og fyrrverandi yfirmaður alþjóðasviðs Landsbankans og einn af arkitektum Icesave, beitti sér fyrir ráðningu Sigurðar Arnars Sigurðssonar í stól forstjóra Húsasmiðjunnar. Sigurður Arnar er föðurbróðir og viðskiptafélagi Hannesar Smárasonar. Vestia er dótturfélag Landsbankans, sem verður 100 prósent í eigu íslenska ríkisins, og inn í það félag renna þau fyrirtæki, önnur en fasteignafélög, sem Landsbankinn tekur yfir. Félagið hefur þegar eignast bæði Húsasmiðjuna og Vodafone, vegna erfiðleika í rekstri fyrirtækjanna. Með þeim valdamestu Vestia er stýrt af Steinþóri Baldurssyni, og er því óhætt að fullyrða að Steinþór sé með valdamestu mönnunum í íslensku viðskiptalífi í dag, enda útséð að stór hluti skuldsettra fyrirtækja sem Landsbankinn lánaði peninga lendi í faðmi Vestia. Bankinn var jafnframt með mun stærra útlánasafn á íslenskum markaði en bæði Glitnir og Kaupþing. Steinþór var yfirmaður á alþjóðasviði Landsbankans, var yfir samrunum og yfirtökum og stýrði útrás bankans, kaupum á fyrirtækjum eins og Teather & Greenwood, Kepler og Merrion. Færri vita hins vegar að Steinþór var einn af arkitektum Icesave-reikninganna. Fyrirmyndin að Icesave var ING Direct, netreikningar hollenska bankans ING. Hugmyndin að safna innlánum hjá breskri og hollenskri alþýðu var ekki Steinþórs, en hún kom frá Heritable-bankanum, dótturfélagi Landsbankans í Lundúnum þegar Landsbankinn fékk ekki nein lán eftir lausafjárkreppuna 2006. Lánamarkaðir voru lokaðir á þessum tíma og því var stefnan tekin á söfnun innlána hjá einstaklingum í gegnum veraldarvefinn. Hægri hönd SigurjónsFyrrverandi samstarfsmennn Steinþórs segja að hann hafi verið eins konar hægri hönd Sigurjóns Þ. Árnasonar, bankastjóra, í málum tengdum yfirtökum á dótturfélögum og Icesave. Fleiri stjórnendur komu nálægt uppsetningu Icesave-reikninganna en þeir eiga það allir sameiginlegt að vera hættir hjá bankanum. Steinþór sagði í samtali við fréttastofu að starf hans hafi snúið að vöruþróun og gerð verkferla Icesave og samhæfingu milli vinnunnar sem unnin var í erlendum útibúum og Landsbankans á Íslandi. Hann hafnar því að hafa borið ábyrgð eða komið að markaðssetningu Icesave, slíkt hafi verið á ábyrgð bankastjóranna, Sigurjóns og Halldórs, og stjórnenda erlendra útibúa. Með örlög margra fyrirtækja í hendi sér Sem forstjóri Vestia hefur Steinþór mikið að segja um örlög fyrirtækja sem Landsbankinn tekur yfir. Nú hefur Sigurður Arnar Sigurðsson, föðurbróðir og viðskiptafélagi Hannesar Smárasonar, verið ráðinn forstjóri Húsasmiðjunnar, en Sigurður átti með Hannesi matvælafyrirtækið Novel Group í Lundúnum sem nú er gjaldþrota. Steinþór Baldursson sagði í samtali við fréttastofu að Sigurður Arnar hafi verið ráðinn á grundvelli hæfni sinnar. Frændsemi hans hafi engin áhrif haft á ráðninguna.„Við réðum sérfræðing á þeim starfssviðum sem Húsasmiðjan starfar á. Maðurinn er með gríðarlega mikla reynslu á sviði smásölu- og heildsölu," segir Steinþór um ráðningu Sigurðar Arnars. Hæfni réð för, ekki frændsemi Steinþór segir að þegar legið hafi fyrir að Vestia tæki yfir Húsasmiðjuna hafi Steinþór verið kynntur fyrir Sigurði og Vestia síðar gert ráðgjafarsamning við hann. Steinþór segir að ráðningin tengist ekki bakgrunni Sigurðar og að reynsla Sigurðar, sem er46 ára gamall viðskiptafræðingur, frá Byko og Elko komi sér vel, en hann kom að stofnun síðarnefnda félagsins. Steinþór segist ekkert þekkja Hannes Smárson og hann hafi aldrei talað við hann. „Stjórn Húsasmiðjunnar telur að frændsemi eigi á engan hátt að hafa áhrif á mat á hæfi einstaklinga, frændsemi Sigurðar hafði engin áhrif á þessa ráðningu," segir Steinþór.Þess má geta að fjöldi manna sóttist eftir starfi framkvæmdastjóra Vestia, en ákvörðun um ráðningu Steinþórs tók Ásmundur Stefánsson, bankastjóri.
Mest lesið Gleymdi að skrá sig úr stæðinu og því rukkuð um 48 þúsund Neytendur Selja Lagarfoss með tæpleg hálfs milljarðs tapi Viðskipti innlent Ójafnrétti að konur þurfi að ganga á veikindarétt vegna barneigna Viðskipti innlent Hótar Kanadamönnum hærri tollgjöldum Viðskipti erlent Íbúðum í byggingu fækkar Viðskipti innlent Völdu Noreg fram yfir Ísland þrátt fyrir að besta lausnin væri hér Viðskipti innlent Um forvitna yfirmanninn Atvinnulíf Eiginkona stjórnarmanns keypti óvart í bankanum Viðskipti innlent Fyrirtæki í vopnaframleiðslu eru á rauðum lista Viðskipti innlent Kaffi heldur áfram að hækka í verði Neytendur Fleiri fréttir Íbúðum í byggingu fækkar Selja Lagarfoss með tæpleg hálfs milljarðs tapi Ójafnrétti að konur þurfi að ganga á veikindarétt vegna barneigna Fyrirtæki í vopnaframleiðslu eru á rauðum lista Völdu Noreg fram yfir Ísland þrátt fyrir að besta lausnin væri hér Eiginkona stjórnarmanns keypti óvart í bankanum Raunverð íbúða hefur þrefaldast frá aldamótum Atli Óskar ráðinn rekstrarstjóri framleiðslu Engin U-beygja hjá Play Veitingamenn verulega óánægðir með eftirlitið Hindranir í vegi þess að lífeyrissjóðirnir taki þátt í hernaðaruppbyggingu Evrópu Spá umtalsverðum samdrætti í byggingu nýrra íbúða Falsaði fleiri bréf Veltir því upp hvort eigendum hafi verið refsað fyrir að tjá sig Hætta við yfirtökuna Harpa og Linda ráðnar forstöðumenn Stærsti samruninn í áraraðir á borð Samkeppniseftirlitsins Sylvía Kristín ráðin forstjóri Nova Íslenskur pítsastaður í Kína: „Það verður skrítnara og skrítnara að segja frá þessu“ Farþegum til landsins fjölgaði um tuttugu prósent Kvika hafi grætt töluvert á því að hafna upphaflegum tilboðum „Sem betur fer eru aðrir fiskar í sjónum“ Arion og Kvika í samrunaviðræður Eyþór hættur sem framkvæmdastjóri Hopp Svona munu stækkuð Skógarböð og hótel líta út Skrautleg saga laganna hans Bubba Sætta sig ekki við höfnun Kviku Hagnaðist um tæpar sjötíu milljónir króna Lofar bongóblíðu við langþráð langborð Minnstu sparisjóðirnir sameinast Sjá meira