Seðlabankinn í pattstöðu 16. mars 2010 00:01
Engin rök eru fyrir háum vöxtum Seðlabankans. Afgangur af vöruskiptum við útlönd er mikill og gríðarlegur slaki er á innlendri eftirspurn. Það endurspeglast í meira atvinnuleysi en sést hefur hér á landi. Seðlabankinn er hins vegar í pattstöðu enda verður hann að hafa rými til að hækka stýrivexti þegar krónunni verður sleppt lausri. Þetta er álit Skuggabankastjórnar Fréttablaðsins, sem ekki er einróma í vaxtaákvörðun sinni að þessu sinni. Hún ráðleggur að lækka stýrivexti um allt frá fjórðungi úr prósenti upp í eitt prósent. Það sem helst mælir gegn myndarlegri lækkun stýrivaxta er Icesave-málið og óvissa um erlendar lánveitingar. Skuggabankastjórnin segir óvissuna of mikla til að lækka stýrivexti hratt. Skuggabankastjórnin segir Icesave-málið hæglega geta dregist langt fram eftir ári og valdið því að mikilvæg efnahagsmál verði látin sitja á hakanum. Því verði að koma málinu frá. Skuggabankastjórnin segir mikilvægt að lækka stýrivexti til að koma atvinnulífi á hreyfingu. Á sama tíma þurfi að afnema gjaldeyrishöft í nokkrum skrefum á næstu mánuðum og opna fyrir frelsi í fjármagnshreyfingum landa á milli innan tveggja ára. Seðlabankinn hefur ekkert gefið út hvenær sú stund rennur upp. Þegar það gerist verður Seðlabankinn að hækka stýrivexti. Hann hefur hins vegar misst af tækifærinu og stendur nú frammi fyrir því að stýrivextir eru of háir á sama tíma og hann þarf að hækka þá frekar á næstu árum til að forðast gengis-hrun, að mati Skuggabankastjórnarinnar. Stýrivextir Seðlabankans standa nú í 9,5 prósentum. Bankinn greinir frá vaxtaákvörðun sinni á morgun. jonab@frettabladid.is
Mest lesið Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Viðskipti innlent Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Viðskipti innlent Fer frá laxeldi í eldri borgara Viðskipti innlent Sektir Neytendastofu á bílastæðafyrirtækin „dropi í hafið“ Neytendur Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Viðskipti innlent Farþegum fækkaði milli ára Viðskipti innlent Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Viðskipti innlent Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Viðskipti innlent Tollar kísilframleiðslu í Kína Viðskipti erlent Innkalla te sem innihélt ál Neytendur Fleiri fréttir Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Eykur strandveiðikvótann um 964 tonn Þórunn stígur til hliðar hjá Úrvali Útsýn Gistinóttum á hótelum fækkaði milli ára Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Tvírukkaðar færslur leiðréttar Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Ekki erfitt að skila hagnaði í gósentíð hávaxtaumhverfis Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Samkeppniseftirlitið leggur blessun sína yfir samruna Brims og Lýsis Bæta við sex nýjum Airbus-vélum María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Fyrsta apótek Víkur opnað Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Stóru fyrirtækin geti jafnvel orðið öflugri innan ESB Sjá meira