Bakkabræður að missa Bakkavör Þorbjörn Þórðarson skrifar 17. janúar 2010 18:45
Ágúst og Lýður Guðmundssynir eru að missa eignarhald sitt á Bakkavör. Þeir létu setja sérstök ákvæði í lánasamninga fyrirtækisins sem gera það að verkum að kröfuhafar Bakkavarar, sem nú eru að taka félagið yfir, geta ekki skipt um stjórnendur. Bræðurnir verða því áfram við stjórnvölinn, þrátt fyrir nýja eigendur. Samkvæmt drögum að samkomulagi sem gengið hefur verið frá fyrir tilstuðlan ráðgjafafyrirtækisins THM Partners, sem ráðið var til að leiða til lykta ágreining milli kröfuhafa Bakkavarar, Exista og bræðranna, mun 39,4 prósenta hlutur bræðranna Bakkavör renna til kröfuhafa Exista, en Exista verður lagt niður í núverandi mynd eins og fréttastofa hefur greint frá. Niðurstaðan um að færa hlutinn aftur í Exista var hluti af endurskipulagningu sem kynnt var kröfuhöfum Bakkavarar í Lundúnum fyrir rúmri viku síðan. Þess má geta að Exista lánaði bræðrunum fyrir kaupum á 39,6 prósenta hlutnum í Bakkavör í október 2008 með svokölluðu seljandaláni upp á 8,4 milljarða króna á mjög góðum kjörum og reiddu bræðurnir ekkert eigið fé fram við kaupin, en Bakkavör er skráð félag og hin 60 prósentin eru í eigu nokkur þúsund annarra hluthafa. Hugmyndin er að bræðurnir fái að kaupa lítinn hlut í Bakkavör eftir fjögur til fimm ár þegar búið er að greiða ákveðið hlutfall af skuldum Bakkavarar en engar skuldir félagsins verða afskrifaðar. Ekki liggur fyrir á hvaða gengi bræðurnir fá að kaupa á og hversu stór hluti skuldanna þarf að vera greiddur áður en þeir fá að kaupa hlut, en rætt hefur verið um 50-70 prósent í því samhengi. Kröfuhafar Bakkavarar, sem eru að mestu hinir sömu og Exista, þurfa að hafa bræðurna áfram við stórnvölinn tilneyddir því eftir að bræðurnir seldu sjálfum sér hlutinn í Bakkavör í fyrra voru sett inn sérstök ákvæði í lánasamninga Bakkavarar í Lundúnum sem gera það að verkum að lánveitendur geta gjaldfellt lán til félagsins ef það verður breyting á yfirstjórn fyrirtækisins. Um er að ræða svokölluð „change of control" ákvæði. Því verður Ágúst Guðmundsson áfram forstjóri Bakkavarar og Lýður verður áfram stjórnarformaður.
Mest lesið Loka í Kringlunni Viðskipti innlent Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Viðskipti innlent Ekki allir geta sagt: „Ég græddi fúlgur fyrir fyrirtækið í dag“ Atvinnulíf Meiriháttar truflanir á greiðslumiðlun á Norðurlöndum Viðskipti erlent Nýtt á Íslandi: Auglýsingalausn sem sameinar sjónvarp og samfélagsmiðla Samstarf Skatturinn birtir álagningu í dag Viðskipti innlent Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Viðskipti erlent Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Viðskipti innlent Kaffitár hressir ferðalanga sem stoppa á Olís Samstarf Hækka stýrivexti aftur Viðskipti innlent Fleiri fréttir Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Þórir og Ómar ganga til liðs við Vettvang Farangursvagni ekið utan í flugvél og flugferð aflýst María nýr stjórnarformaður SVEIT Ný Lindex verslun opnuð í Kringlunni Ráðinn forstjóri Nathan Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Spá 0,25 prósentustiga hækkun stýrivaxta Sjá meira