Viðskipti innlent

Stærsta átak í heimi á sviði nýsköpunar

Framkvæmdastjóri Athafnaviku segir vikuna vera hvatningu til fólks til að láta hugmyndir sínar verða að veruleika. 
fréttablaðið/vilhelm
Framkvæmdastjóri Athafnaviku segir vikuna vera hvatningu til fólks til að láta hugmyndir sínar verða að veruleika. fréttablaðið/vilhelm

Alþjóðlega athafnavikan á Íslandi hefst á mánudaginn næstkomandi. Að vikunni koma um 100 lönd og er þetta í annað sinn sem vikan er haldin á Íslandi og í þriðja sinn á heimsvísu.

Árið 2009 voru um fimmtíu samstarfsaðilar sem tóku þátt hér á landi, yfir 5.000 gestir og um 120 viðburðir. Ísland fékk viðurkenningu fyrir að vera með flesta viðburði miðað við höfðatölu og lenti í 14. sæti yfir flesta viðburði yfir allt.

Þórhildur Birgisdóttir, framkvæmdastjóri Athafnavikunnar á Íslandi, segir allt stefna í að þátttakan verði jafn góð og jafnvel betri en í fyrra.

„Þetta er stærsta hvatningarátak í heimi á sviði nýsköpunar,“ segir Þórhildur. „Við viljum hvetja fólk til þess að láta hugmyndir sínar verða að veruleika og minna á gildi athafnasemi.“

Hver sem er getur haldið viðburð í vikunni, einstaklingar, félagasamtök, fyrirtæki og stofnanir. Margir af helstu leiðtogum heims eru talsmenn vikunnar, meðal annars Hillary Clinton og Nicholas Sarkozy. Hér á landi eru þær Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra og Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, meðal talsmanna. Iðnaðarráðherra setur hátíðina í Nauthóli á mánudaginn klukkan 17.

Dagskrá og skráningu er að finna á heimasíðu Athafnaviku, www.athafnavika.is. - sv






Fleiri fréttir

Sjá meira


×