Ríkisendurskoðun fylgist náið með sparnaði næstu ár 12. nóvember 2010 13:56
Ríkisendurskoðun mun leggja áherslu á vandamál stjórnvalda og stofnana vegna erfiðrar stöðu ríkissjóðs í stjórnsýsluúttektum sínum á næstu tveimur árum. Sérstök áhersla verður lögð á að ríkisstofnanir standi við sparnaðaráform stjórnvalda. Fjallað er um málið á vefsíðu Ríkisendurskoðunnar. Þar segir að niðurskurður og skipulagsbreytingar í ríkiskerfinu setja mark sitt á starfsáætlun Ríkisendurskoðunar um stjórnsýsluendurskoðun fyrir tímabilið frá hausti 2010 til hausts 2012. Stjórnsýsluendurskoðun er eitt meginverkefni stofnunarinnar og felst í því að kanna meðferð og nýtingu á almannafé. 13 af samtals 49 starfsmönnum hennar sinna þessu verkefni. Minnkandi tekjur ríkisins valda því að draga verður saman í rekstri þess og endurskipuleggja verkefni og þjónustu. Í stjórnsýsluúttektum á tímabilinu verður lögð sérstök áhersla á þau vandamál sem ráðuneyti og stofnanir standa frammi fyrir vegna þessa. Jafnframt verður hugað að leiðum til að efla sparnað og fylgst með því hvort verkefni séu unnin í samræmi við lög og reglur. Úttektum verður beint í stuttar og afmarkarðar skýrslur og fremur lögð áhersla á tiltekin afmörkuð vandamál en heila málaflokka eða stofnanir. Vinnubrögð munu einkennast af svokölluðu samtímaeftirliti og sveigjanleika í starfi. Með samtímaeftirliti er átt við að gerð er úttekt á verkefnum meðan þeim vindur fram en ekki eftir að þeim er lokið. Athyglinni verður ekki beint að fyrirfram ákveðnum ráðuneytum eða málaflokkum heldur þeim verkefnum sem mest eru aðkallandi hverju sinni. Ríkisendurskoðun sækir heimild sína til stjórnsýsluendurskoðunar í 9. gr. laga um stofnunina. Þar segir að þessi tegund endurskoðunar felist í því að „kanna meðferð og nýtingu ríkisfjár, hvort hagkvæmni og skilvirkni sé gætt í rekstri stofnana og fyrirtækja í eigu ríkisins og hvort gildandi lagafyrirmælum sé framfylgt í þessu sambandi." Það sem af er árinu hefur stjórnsýslusvið Ríkisendurskoðunar birt samtals 17 skýrslur um niðurstöður úttekta og eru þær allar birtar hér á vefnum.
Mest lesið Afkoma umfram áætlanir Viðskipti innlent Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Samstarf Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Viðskipti innlent „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Viðskipti innlent Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Viðskipti innlent Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Viðskipti innlent Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör Viðskipti innlent Hvenær getur þú hætt að vinna? Samstarf Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Samstarf Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Viðskipti innlent Fleiri fréttir Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Sjá meira