Bættar forvarnir geta sparað milljarða í atvinnurekstri 1. febrúar 2010 15:54
Árlega þurfa um 9000 manns að leita aðstoðar vegna vinnuslysa hér á landi og rannsóknir sýna að enn fleiri verða fyrir heilsutjóni vegna atvinnusjúkdóma. Á árunum 2006 til 2008 létust að jafnaði 5 manns árlega í vinnuslysum hér á landi. Rannsóknir á Vesturlöndum benda til þess að 3-4% af landsframleiðslu glatist vegna heilsutjóns á vinnustöðum en það samsvarar 45-60 milljörðum króna á Íslandi. Í tilkynningu segir að Vinnueftirlitið og VÍS hafi tekið upp samstarf sem miðar að því að efla forvarnir en talið er að með tiltölulega einföldum og ódýrum fyrirbyggjandi aðgerðum megi fækka verulega óhöppum og slysum í atvinnurekstri og draga þannig verulega úr þeim útgjöldum sem af þeim hljótast. Samstarf Vinnueftirlits og VÍS verður innsiglað með sameiginlegri ráðstefnu um forvarnarmál sem haldin verður þann 4. febrúar næst komandi. Ljóst er að forsenda þess að draga megi úr óhöppum og heilsutjóni í atvinnulífinu er að fram fari áhættumat á vinnustöðum. Þegar það liggur fyrir er hægt að grípa til fyrirbyggjandi aðgerða en reynslan sýnir að jafnvel hættulegustu störf má skipuleggja þannig að áhætta sé í lágmarki. Samkvæmt tilskipun Evrópusambandsins frá 1989 ber atvinnurekendum að gera skriflega áætlun um öryggi og heilbrigði á vinnustað, þar með talið áhættumat. Þessar reglur voru innleiddar hér á landi árið 2006 og samkvæmt könnunum sem bæði Vinnueftirlitið og VÍS hafa gert er verulegur misbrestur á að íslensk fyrirtæki uppfylli lögboðnar skyldur í þessum efnum. Í könnun Vinnueftirlitsins sem gerð var árið 2009 höfðu einungis 6% íslenskra fyrirtækja með 1-4 starfsmenn framkvæmt lögbundið áhættumat, hjá fyrirtækjum með 5-19 starfsmenn höfðu 20% gert áhættumat og 31% fyrirtækja með 20 starfsmenn eða fleiri. Heimsóknir þjónustufulltrúa VÍS í 300 fyrirtæki á síðasta ári sýndu svipaða niðurstöðu en þá voru einungis 12% fyrirtækja búin að gera áhættumat. Til samanburðar má geta þess að árið 2006 höfðu 75% danskra fyrirtækja með 1-4 starfsmenn gert áhættumat, 75% fyrirtækja með 5-19 starfsmenn og 97% danskra fyrirtækja með 20 starfsmenn og fleiri höfðu lagt mat á áhættu í starfsemi sinni árið 2006. Geta má þess að innleiðing áhættumats byrjaði 13 árum fyrr í Danmörku. Á ráðstefnu VÍS og Vinnueftirlitsins verður sjónum einkum beint að áhættumati og áhættuskráningu. Fjallað verður um áhættumat og forvarnir hjá sveitarfélögum og bændum og fulltrúar fyrirtækja í ólíkum rekstri munu gera grein fyrir atvikaskráningu og áhættumati í rekstri sínum. Á ráðstefnunni verða forvarnarverðlaun VÍS veitt í fyrsta skipti fyrirtækjum sem talin eru til fyrirmyndar eða hafa náð góðum árangri í forvarnarmálum. Stefnt er að því að forvarnarráðstefna VÍS og Vinnueftirlitsins verði árlegur viðburður. Hún verðu haldin milli kl. 13 og 16 í húsakynnum VÍS í Ármúla fimmtudaginn 4. febrúar.
Mest lesið B12 Space gjaldþrota Viðskipti innlent Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Viðskipti innlent Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Samstarf Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Viðskipti innlent Ástarsaga: Markmiðið að allir verði ástfangnir af LOVE Atvinnulíf Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Viðskipti innlent Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Viðskipti innlent Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf Fleiri fréttir B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Sjá meira