Japanskur banki vill upplýsingar um afdrif 50 milljón dollara láns 26. janúar 2010 12:04 Kaupþing. Mynd úr safni.
Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði í dag að japanski bankinn, The Bank of Tokyo-Mitsubishi, fengi aðgang að sjö gögnum hjá gamla Kaupþingi og Arion Banka til þess að kanna hver urðu afdrif 50 milljón dollara gjaldmiðlaláns sem bankinn lánaði Kaupþingi 39 mínútum áður en skilanefnd tók bankann yfir haustið 2008. Japanski bankinn óskaði upphaflega eftir því að fá aðgang að 21 gagni hjá íslensku bönkunum. Kaupþing og Arion Banki báru fyrir sig bankaleynd. Forsaga málsins er sú að Tokyo-Mitsubishi bankinn og Kaupþing gerðu með sér gjaldmiðlasamning 22. september 2008. Þá lagði japanski bankinn 50 milljónir dollara eða um 6,3 milljarða íslenskra króna á núverandi gengi, inn á reikning JP Morgan í New York. Kaupþing átti svo að leggja samsvarandi upphæð í jenum inn á reikning hjá sama banka. 39 mínútum eftir að Tokyo-Mitsubishi bankinn lagði peninginn inn á reikning JP Morgan tók skilanefnd yfir rekstur Kaupþings. Í kjölfarið voru 50 milljónirnar lagðar inn á reikning Seðlabankan Íslands í New York en Kaupþing lagði aldrei inn samsvarandi upphæð í jenum inn á reikning JP Morgan. Nú vill Tokyo-Mitsubishi bankinn fá að vita um afdrif peninganna með það að markmiði að höfða mál vegna þess að Kaupþing uppfyllti ekki skyldur sínar í gjaldmiðlasamningnum sem bankarnir gerðu sín á milli. Til þess að svo geti orðið þarf bankinn á upplýsingunum að halda. Meðal þeirra upplýsinga sem bankinn fær aðgang að eru öll gögn um það hvar eftirstöðvar af láninu er staðsett.
Mest lesið „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Live verður Lifa Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira