Viðskipti innlent

Töluverð fjölgun farþega hjá Icelandair í ár

Farþegum Icelandair fjölgaði um 14% á fyrstu níu mánuðum ársins miðað við sama tímabil í ár. Farþegafjöldinn í ár var tæplega 1,3 milljón manns en í fyrra var fjöldinn rúmlega 1,1 milljón manns.

Hvað október varðar er enn meiri aukning á fjölda farþega eða 27% miðað við október í fyrra.

Þetta kemur fram í flutningstölum sem Icelandair hefur sent frá sér.

Hvað Flugfélag Íslands varðar fjölgaði farþegum í milli mánaða í október í fyrsta sinn á þessu ári eða um 7%. Hinsvegar hefur farþegunum fækkað um 7% á fyrstu níu mánuðum ársins miðað við sama tímabil í fyrra. Heildarfjöldi farþega á fyrstu níu mánuðunum í ár nam tæplega 292.000 manns.

Fram kemur í tölunum að fraktflug heldur áfram að dragast saman eða um 4% á fyrstu níu mánuðum ársins m.v. sama tímabil í fyrra. Hótelgestum á vegum Icelandair fækkar hinsvegar aðeins um 2% milli áranna en seldar gistinætur voru rúmlega 141.000 talsins á fyrstu níu mánuðum ársins.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×