Reyndu að fela aðkomu Ólafs í Al-Thani málinu Sigríður Mogensen skrifar 7. júní 2010 11:19 Kaupþingsmenn reyndu að fela aðkomu Ólafs Ólafssonar, oftast kenndur við Samskip.
Sjeikinn Mohammed Al-Thani frá Katar fékk 6,5 milljarða króna fyrir að lána nafn sitt í viðskiptum með 5% hlut í Kaupþingi rétt fyrir fall bankans, að því er fram kemur í DV í dag. Magnús Guðmundsson og Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi stjórnendur bankans, eru sagðir hafa stýrt leikfléttunni. Þá hafi verið reynt að fela aðkomu Ólafs Ólafssonar. DV birtir í dag endurrit af símtali Halldórs Bjarkars Lúðvígssonar, fyrrverandi starfsmanns fyrirtækjasviðs Kaupþings og Lilju Steinþórsdóttur í innri endurskoðun bankans frá því í ársbyrjun 2009, þar sem þau ræða kaup sjeiksins á 5% hlut í Kaupþingi sumarið 2008. Halldór Bjarkar hafði við upphaf rannsóknar sérstaks saksóknara réttarstöðu grunaðs í málinu en er nú yfirheyrður sem vitni. Halldór Bjarkar og Lilja eru bæði starfsmenn Arion banka. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu var símtalið hluti af rannsókn á málinu að frumkvæði innri endurskoðunar og skilanefndar Kaupþings. Í kjölfar hennar var málið sent í heild sinni til sérstaks saksóknara. Samtalið varpar meðal annars ljósi á þátt Ólafs Ólafssonar í Al-Thani málinu en svo virðist sem farið hafi verið ýmsar krókaleiðir til að fela aðkomu hans að kaupunum. Þá hafi Al-Thani ekki lagt út neina peninga í viðskiptunum, né tekið á sig persónulega áhættu. Í samtalinu kemur einnig fram að hann hafi átt að fá 50 milljónir dollara, eða um sex og hálfan milljarð króna fyrir að lána nafn sitt í fléttuna. Í símtalinu segir Halldór Bjarkar að Maggi og Hreiðar hafi samið þetta allt, eins og það er orðað. Um er að ræða þá Magnús Guðmundsson, fyrrverandi bankastjóra Kaupþings í Lúxemborg og Hreiðar Má Sigurðsson, fyrrverandi bankastjóra móðurfélagsins en þeir virðast hafa stjórnað leikfléttunni. Þeir voru handteknir í byrjun maí í tengslum við rannsókn sérstaks saksóknara á málefnum Kaupþings og sátu báðir í einangrun í rúma viku. Eins og fram kom í skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis voru viðskiptin gríðarlega flókin og fór 25 milljarða króna lán frá Kaupþingi í gegnum hin ýmsu félög áður en lánið endaði inn í félaginu Q Finance, sem að lokum keypti hlutabréfin í Kaupþingi. Þegar kaupin voru tilkynnt var sagt að Al-Thani væri eigandi félagsins. Í samtalinu sem DV hefur undir höndum segir Halldór Bjarkar að tilgangur flækjunnar hafi verið til að fela það að Ólafur hafi í raun átt helminginn í því.
Mest lesið „Krakkar sem gistu hjá okkur vissu ekki hvað var að gerast!“ Atvinnulíf Icelandair segir upp 57 flugmönnum Viðskipti innlent Brimborg lækkar verð á rafbílnum Volvo EX30 Samstarf Hinn almenni borgari þurfi ekki að dæla í sig steinefnum Neytendur Blár Opal seldist á fimmtán þúsund Neytendur Nýr Peugeot E-3008 rafbíll frumsýndur í Brimborg Samstarf Festi fær að kaupa Lyfju Neytendur Leiðtogakulnun: Þegar yfirmaðurinn er alveg búinn á því Atvinnulíf „Sársaukafullt að sjá“ IKEA vasa dýrari í Góða hirðinum Neytendur Danir höndla ekki kóresku pakkanúðlurnar Viðskipti erlent Fleiri fréttir Icelandair segir upp 57 flugmönnum Húsnæði B5 auglýst til leigu enn og aftur Selja höfuðstöðvarnar sem voru rýmdar vegna myglu „Betur borgandi ferðamenn“ enginn bjargvættur ferðaþjónustunnar Vetrarþjónustan þungur baggi á borginni Gerður Björt nýr framkvæmdastjóri rekstrarþjónustu Wise Kristján Andrésson gengur til liðs við Arion banka Running Tide segir upp öllu starfsfólki á Íslandi Stefnt á að virkjun Hvalár geti hafist eftir tvö ár Bjór, bingó og bíó í Vinabæ á ný Frederiksen víkur fyrir Bird Áhöfnum tveggja skipa Þorbjarnar sagt upp Sigurður Tómasson til liðs við Origo Hrefna og Unnur til Novum Easyjet flýgur frá Akureyri til Manchester í vetur 500 manns sóttu um störf hjá OCHE Reykjavík Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Skuldar þrotabúi föður síns fleiri milljarða Fleiri farþegar og betri nýting Gengu frá 135 milljarða samningi um endurfjármögnun skulda Fjárfesta fyrir þrjá milljarða í Reykjanesbæ og Hafnarfirði Ein og hálf milljón farþega á fyrstu fimm mánuðum ársins Ingibjörg Ösp yfir nýrri rekstrarráðgjöf Expectus Þrír nýir stjórnendur hjá Festi „Að fara í slag við þessa risa er nánast ómögulegt“ Fjórir sérfræðingar til liðs við Helix Vilhjálmur Hilmarsson nýr hagfræðingur Visku Heimtu hlutinn úr helju og verða stærstu einkafjárfestarnir Varar við þenslu á byggingamarkaði Ráðinn tækni- og þróunarstjóri Defend Iceland Sjá meira