Tchenguiz bræður vilja fjögur hundruð milljarða frá Kaupþingi Sigríður Mogensen skrifar 22. janúar 2010 18:31
Bræðurnir Robert og Vincent Tchenguiz, sem voru meðal stærstu viðskiptavina Kaupþings, gera yfir fjögur hundruð milljarða króna skaðabótakröfur í þrotabú bankans. Kröfurnar koma frá tveimur vogunarsjóðum á Guernsey og Tortóla. Tchenguiz bræður fengu á sínum tíma hátt í þrjú hundruð milljarða að láni hjá bankanum. Þar má sjá að sjóðurinn Investec Trust Limited á Görnsí gerir 127 milljarða króna skaðabótakröfu í þrotabúið og sjóður að nafni Euro Investments Overseas á Tortóla gerir skaðabótakröfu upp á 317 milljarða króna. Heimildir fréttastofu herma að sjóðirnir séu í eigu bræðranna Robert og Vincent Tchenguiz, þekktra fjárfesta á Bretlandseyjum. Samtals gerir þetta rúma 440 milljarða króna, og er því í hópi stærstu krafnanna. Robert Tchenguiz var einn helsti viðskiptavinur Kaupþings og náinn viðskiptafélagi eigenda bankans. Hann átti hlut í Existu og sat í stjórn þess félags, en Exista var stærsti eigandi Kaupþings. Hann mun hafa farið illa út úr hruninu 2008. Samkvæmt lánabókinni sem lak á netið í sumar voru Tchenguiz bræður í hópi stærstu lántakenda fallna bankans en þeir fengu samtals rúmlega tvö hundruð og áttatíu milljarða að láni hjá Kaupþingi. Heimildamenn fréttastofu telja ólíklegt að skaðabótakröfurnar verði samþykktar af slitastjórn Kaupþings, enda séu þær tilhæfulausar. Um er að ræða lagalegan ágreining milli Kaupþings og bræðranna, sem tengist viðskiptum í Bretlandi. Bræðurnir verða því seint meðal eigenda Arion banka, sem er kominn í hendur kröfuhafa Kaupþings.
Mest lesið Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Viðskipti innlent Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Kviku banka Viðskipti innlent „Þetta er sögudrifinn söngleikur með rómantísku ívafi“ Atvinnulíf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Viðskipti innlent Fyrstu Spar-verslanirnar opna um helgina Neytendur Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Viðskipti innlent Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Viðskipti innlent Hjallastefnan fær loksins húsnæði Viðskipti innlent Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Viðskipti innlent Fleiri fréttir Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Uppsagnir hjá Kviku banka Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Sjá meira