Viðskipti innlent

Samkomulag milli slitastjórnar og Spkef sparisjóðs

Einar Hannesson sparisjóðsstjóri hjá SpKef.
Einar Hannesson sparisjóðsstjóri hjá SpKef.

Náðst hefur samkomulag milli slitastjórnar Sparisjóðsins í Keflavík og Spkef sparisjóðs, um uppgjör vegna yfirtöku Spkef sparsjóðs á innstæðum og rekstri Sparisjóðsins í Keflavík.

Samkvæmt samkomulaginu greiðir Spkef sparisjóður samtals 300 milljónir kr. til Sparisjóðsins í Keflavík vegna yfirtöku á innstæðum, eignum og rekstri sparisjóðsins.

Í tilkyningu segir að með samkomulaginu skapast forsendur til þess að ljúka fjármögnun sparisjóðsins, en nýr efnahagsreikningur sparisjóðsins mun tryggja fjárhagslega stöðu hans í samræmi við kröfur Fjármálaeftirlits og Seðlabanka Íslands.

Sparisjóðurinn mun leggja áherslu á að starfa í anda sparisjóða hugsjónarinnar, bjóða viðskiptavinum sínum persónulega þjónustu af umhyggju og nærgætni með hagsmuni viðskiptavina að leiðarljósi.

Sparisjóðurinn mun hér eftir, sem hingað til kappkosta að styðja vel við nærsamfélag sitt á hverjum stað fyrir sig.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×