Viðskipti innlent

Skuldir fyrirtækja stjarnfræðilega háar

Ingimar Karl Helgason skrifar

Þriðjungur íslenskra fyrirtækja skuldar meira en rekstur þeirra stendur undir. Skuldir þeirra umfram eignir eru samtals ríflega sex þúsund og sex hundruð milljarðar króna.

Efnahags- og viðskiptaráðuneytið birti í dag tölur um skuldir fyrirtækja. Þar kemur meðal annars fram að þriðungur fyrirtækja, á milli 5 og 7 þúsund fyrirtæki, skulda meira en rekstur þeirra stsendur undir. Neikvætt eigið fé þessara fyrirtækja nemur sex þúsund og sex hundruð milljörðum króna.

Fram kemur í Hagsýn að helmingur fyrirtækja sé í vanskilum við viðskiptabankana. En þó séu aðeins fjögur prósent þeirra gjaldþrota.Greiðslustöðvun, nauðasamningar eða gjaldþrot geti í kreppu orðið að vítahring gjaldþrota, greiðsluvanda annarra fyrirtækja, og ýtt undir langvarandi atvinnuleysi.

„Þetta eru í fyrsta lagi stjarnfræðilegar tölur en skýrast að miklu leyti til af því að íslensk fyrirtæki fjármögnuðu sig með erlendri mynt fyrir hrunið," segir Ólafur Ísleifsson, lektor í hagfræði við Háskólann í Reykjavík.

Ólafur segir að óhagstæð lánakjör hérlendis hafi hrakið fyrirtæki til að taka lán í erlendri mynt. Rætt hafi verið um skuldahreinsun hjá þeim.

Brýnt sé að það starf sem nú sé hafið hjá bönkunum fái jafnvel aukinn forgang. Það skipti miklu máli að koma vinnustöðum fólks á skikkanlegan fjárhagslegan grundvöll, sem allra fyrst.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×