Viðskipti innlent

Hrein eign lífeyrissjóða jókst um 7,4 milljarða í september

Hrein eign lífeyrissjóða í lok september sl. var 1.835,1 milljarður kr. og hækkaði hún um 7,4 milljarða kr. í mánuðinum eða um 0,4%.

Þetta kemur fram í hagtölum Seðlabankans. Þar segir að hækkunina megi helst rekja til breytinga á erlendum liðum. Erlend verðbréfaeign hækkaði um 6,0 milljarða kr. eða 1,2 % frá fyrri mánuði.

Sé miðað við september 2009 hefur hrein eign lífeyrissjóða hækkað um 111 ma.kr. eða 6,4%

Vert er að taka fram að enn er nokkur óvissa um endanlegt mat á eignum lífeyrissjóðanna.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×