Reiðufé nam 43,5 milljörðum í Avenskaupunum 9. nóvember 2010 09:10
Af þeim eignum sem Seðlabankinn keypti af Avens B.V. félagi í eigu Landsbankans í Lúxemborg nam reiðufé alls 43,5 milljörðum kr. og var hlutfall þess tæplega 34%. Þetta kemur fram í svari fjármálaráðherra við fyrirspurn Vigdísar Hauksdóttur þingmanns Framsóknarflokksins á Alþingi. Vigdís spurði m.a. hve hátt var hlutfall reiðufjár í kaupunum á útistandandi skuldabréfum Avens B.V. sem voru í eigu Landsbankans í Lúxemborg og hver var upphæðin í íslenskum krónum á kaupdegi? Í svarinu segir: „Með kaupunum í maí sl. á öllum útistandandi skuldabréfum félagsins Avens B.V. tók Seðlabankinn, f.h. ríkisjóðs, yfir stjórn félagsins og leysti það upp. Eignir félagsins; íbúðabréf, ríkisbréf og reiðufé, samtals að andvirði 128,5 milljarðar kr. runnu þá til ríkisjóðs. Andvirði íbúðabréfanna og ríkisbréfanna nam 85 milljörðum kr. og reiðufjár 43,5 milljörðum kr. Hlutfall reiðufjár nam því tæpum 34%." Þá segir að kaupverð skuldabréfa Avens B.V. var 74,6 milljarðar kr. og skiptist þannig að erlend skuldabréf útgefin af íslenska ríkinu námu 401,5 milljónum evra að höfuðstólsfjárhæð en reiðufé nam annarsvegar 35 milljónum evra og hinsvegar fimm milljörðum kr. Vigdís vildi einnig vita hve hátt var hlutfall íbúðabréfa í þessum kaupum og hver var upphæðin í íslenskum krónum á kaupdegi? Í svarinu segir að meðal eigna Avens B.V. voru skuldabréf gefin út af Íbúðalánasjóði fyrir um 76,1 milljarða kr. á markaðsverði og námu um 59% af viðskiptunum. Þá spurði Vigdís hve hátt var hlutfall ríkisbréfa í þessum kaupum og hver var upphæðin í íslenskum krónum á kaupdegi? Í svarinu segir að meðal eigna Avens B.V. voru skuldabréf gefin út af ríkissjóði fyrir um 8,9 milljarða kr. á markaðsverði og námu um 7% af viðskiptunum. Ennfremur kemur fram í svarinu að til viðbótar íbúðabréfum sem ríkissjóður eignaðist við kaup á skuldabréfum Avens B.V. keypti ríkissjóður af Eignarhaldsfélagi Seðlabankans íbúðabréf að markaðsvirði um 45 milljarða kr., sem fjármagnað var að mestu með reiðufé sem fékkst við kaup á skuldabréfum Avens.
Mest lesið Tvírukkaðar færslur leiðréttar Viðskipti innlent Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Viðskipti innlent Ekki erfitt að skila hagnaði í gósentíð hávaxtaumhverfis Viðskipti innlent Sigmundur Davíð finnur fyrir sterkum öflum sem vinna gegn afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Opin vinnurými: Starfsfólki líður illa og finnst erfitt að einbeita sér Atvinnulíf Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Viðskipti innlent Ef krónan væri bíll Viðskipti innlent Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Samstarf Drægnitölurnar komu út í plús Samstarf Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tvírukkaðar færslur leiðréttar Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Ekki erfitt að skila hagnaði í gósentíð hávaxtaumhverfis Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Samkeppniseftirlitið leggur blessun sína yfir samruna Brims og Lýsis Bæta við sex nýjum Airbus-vélum María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Fyrsta apótek Víkur opnað Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Stóru fyrirtækin geti jafnvel orðið öflugri innan ESB Steingrímur kaupir fyrir 51 milljón króna í Heimum „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Sjá meira