Viðskipti innlent

Atli Örn Jónsson framkvæmdastjóri lætur af störfum hjá Byr

Nýlega óskaði Atli Örn Jónsson, framkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs, eftir að láta af störfum hjá Byr sparisjóði.

Í tilkynningu til kauphallarinnar segir að samkomulag hefur orðið um að hann láti af störfum hjá sparisjóðnum eftir daginn í dag. Atla Erni eru þökkuð góð störf fyrir Byr.

Viðskiptabankasvið Byrs sparisjóðs og S24 verða sameinuð í eina starfseiningu og mun Sæmundur Benediktsson verða framkvæmdastjóri hennar hjá sparisjóðnum en hann hefur verið framkvæmdastjóri S24 síðan 1999.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×