Viðskipti innlent

Árétting frá FME vegna VÍS fréttar

Fréttastofu hefur borist árétting frá Fjármálaeftirlitinu vegna fréttar Stöðvar 2 um tryggingafélagið VÍS í gærkvöldi. Hún hljóðar svo orðrétt:

„Í fréttum Stöðvar 2 hinn 14. september er fullyrt að FME hafi samþykkt eignatilfærslu af hálfu Exista frá VÍS sem orðið hafi til þess að eigið fé vátryggingafélagsins hafi orðið neikvætt um 1,8 ma.kr.

Hið rétta er að samruna- og skiptingaráætlun VÍS var kynnt þannig fyrir FME að hlutafjáraukning færi fram samhliða eignatilfærslu. FME hefði ekki haft lagaheimildir til að samþykkja að eiginfjárstaða vátryggingafélags yrði gerð neikvæð, þar sem lög um vátryggingastarfsemi kveða á um að vátryggingafélög skulu á hverjum tíma uppfylla kröfur um lágmarksgjaldþol.

FME gerði ekki athugasemdir við þessar breytingar þar sem samkvæmt upplýsingum eftirlitisins fór hlutafjáraukning fram á sama hluthafafundi og skiptingar- og samrunaáætlunin var endanlega samþykkt og vátryggingafélagið uppfyllti á eftir ákvæði laga og reglugerða um vátryggingastarfsemi."


Tengdar fréttir

Segir VÍS hafa verið strípað af eigendum sínum

Vátryggingarfélag Íslands var strípað af eigendum sínum segir löggiltur endurskoðandi. Eignir fyrir um þrjátíu milljarða króna voru teknar út úr félaginu á þriggja ára tímabili. Endurskoðandinn efast um lögmæti þess gjörnings og um starfshætti Fjármálaeftirlitsins sem lagði blessun sína yfir hann. Tryggingafélagið segir ekkert hæft í þessu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×