Aflaverðmætið komið í 95 milljarða á síðasta ári 25. janúar 2010 09:03
Aflaverðmæti íslenskra skipa nam rúmum 95 milljörðum króna á fyrstu tíu mánuðum ársins 2009, samanborið við tæpa 80 milljarða yfir sama tímabil 2008. Aflaverðmæti hefur því aukist um 15 milljarða eða 19,2% á milli ára. Aflaverðmæti í októbermánuði nam 9,7 milljörðum króna miðað við 9,4 milljarða í október 2008.Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar. Þar segir að aflaverðmæti botnfisks var í lok október orðið tæpir 67 milljarðar króna á árinu sem er aukning um 17,6% frá sama tíma í fyrra þegar aflaverðmætið nam tæpum 57 milljörðum.Verðmæti þorskafla var 29,4 milljarðar og jókst um 12,7% frá árinu 2008. Aflaverðmæti ýsu nam um 13 milljörðum, sem er 2,4% aukning milli ára. Verðmæti karfaaflans nam 8,2 milljörðum, sem er 18,6% aukning frá fyrstu tíu mánuðum ársins 2008, og verðmæti ufsaaflans jókst um 13,4% milli ára í 5,7 milljarða króna. Verðmæti annars botnfisksafla jókst í heild um 34,5% miðað við fyrstu tíu mánuði ársins 2008.Verðmæti flatfiskafla nam 8,4 milljörðum króna í janúar til október 2009 sem er 71,1% aukning frá fyrra ári. Verðmæti uppsjávarafla jókst um 9,2% milli ára og nam tæpum 19 milljörðum króna frá janúar til október 2009. Munar þar mestu um verðmæti síldarafla sem nam 10,4 milljörðum samanborið við 8 milljarða árið 2008 og makríl að verðmæti 4,6 milljarðar, samanborið við 3,5 milljarða fyrir sama tímabil árið 2008.Verðmæti afla sem seldur er í beinni sölu útgerða til vinnslu innanlands nam 35,4 milljörðum króna fyrstu tíu mánuði ársins og jókst um 16,7% frá fyrra ári. Verðmæti afla sem keyptur er á markaði til vinnslu innanlands jókst um 15,6% milli ára og nam 12,5 milljörðum króna. Aflaverðmæti sjófrystingar nam 33,4 milljörðum, samanborið við rúma 26 milljarða árið áður. Verðmæti afla sem fluttur er út óunninn nam um 11,6 milljörðum, sem er 16,7% aukning miðað við tímabilið janúar til október 2008.
Mest lesið Viðskiptafréttir ársins 2025: Leik Play lokið, langþráðar lækkanir og tuttugu milljóna klúbburinn Viðskipti innlent Sýn tilnefnt sem Besta íslenska vörumerkið 2025 Samstarf Sigla til loðnuleitar í fyrstu viku janúar Viðskipti innlent Þau keyptu fyrir tuttugu milljónir í útboðinu Viðskipti innlent Skattakóngurinn flytur úr landi Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Morgunblaðinu Viðskipti innlent Hámark tvær vikur í heilsutengd áramótaheit með eiginkonunni Atvinnulíf Samherji gæti tvöfaldast Viðskipti innlent Rukkaðar fyrir sætin: Blöskrar græðgi vertsins, sem segir gjaldið sjálfsagt Neytendur Omnom gjaldþrota og kröfuhafar uggandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sigla til loðnuleitar í fyrstu viku janúar Viðskiptafréttir ársins 2025: Leik Play lokið, langþráðar lækkanir og tuttugu milljóna klúbburinn Samherji gæti tvöfaldast Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Sjá meira
Viðskiptafréttir ársins 2025: Leik Play lokið, langþráðar lækkanir og tuttugu milljóna klúbburinn Viðskipti innlent
Viðskiptafréttir ársins 2025: Leik Play lokið, langþráðar lækkanir og tuttugu milljóna klúbburinn Viðskipti innlent