Viðskiptaráð hraunar yfir skattastefnu stjórnvalda 9. júlí 2010 11:13 „
Veruleg óvissa ríkir nú í skattamálum fyrirtækja. Takmarkaðar upplýsingar um væntanlegar tekjuöflunarleiðir ríkissjóðs fyrir næsta ár bæta ekki úr skák og gera það að verkum að ómögulegt er að gera langtímaáætlanir."Þetta kemur fram í nýju áliti Viðskiptaráðs sem birt hefur verið á vefsíðu ráðsins. Þar segir einnig að á meðan hvers lags snúningar á skattkerfinu virðast koma til álita hverju sinni hérlendis leggja aðrar þjóðir öðru fremur áherslu á stöðuleika og langtímastefnu.„Það hringl sem einkennt hefur skattalöggjöfina hefur auk þess ýtt undir ósamræmi í skattlagningu hérlendis miðað við það sem gerist í samkeppnislöndum. Með því hefur verið gengið þvert á forsendur atvinnuuppbyggingar á Íslandi, sem getur reynst skaðlegt efnahagsþróuninni til lengri tíma litið," segir í álitinu.„Við þær aðstæður og óvissu sem nú er uppi um fjármögnun íslensku bankanna og getu þeirra til að styðja íslensk fyrirtæki til vaxtar, auk almennrar efnahagslegrar ókyrrðar, er alls óásættanlegt að verið sé að leggja í svo viðamiklar skattkerfisbreytingar án samráðs við atvinnulífið.Eins og Viðskiptaráð hefur áður bent á er óvíst að breytingarnar muni skila tilætluðum árangri til að rétta af halla á opinberum fjárhag. Þvert á móti er hætt við öndverðum áhrifum þannig að þær heildartekjur sem skattleggjast á Íslandi lækki og skatttekjur minnki.Nú ætti því að leggja höfuðáherslu á að skattkerfið verði áfram samkeppnishæft við skattkerfi annarra þjóða og styðji þannig við vöxt atvinnulífs og þá vinnumarkaðar. Áframhaldandi einstefna stjórnvalda í aðra átt mun draga enn frekar úr forsendum öflugrar og fjölbreyttrar atvinnustarfsemi hér á landi."Hvað endurbætur varðar bendir Viðskiptaráð á að afnema eigi afdráttarskatta á vaxtagreiðslur til erlendra aðila. Breyta reglum um skattskil og jöfnun yfirfæranlegs taps hvað varðar söluhagnað í tengslum við endurskipulagningu fyrirtækja. Afnema skilyrði um jöfnun yfirfæranlegs taps þegar um er að ræða arðstekjur frá erlendum dótturfélögum. Efla útgáfu skattyfirvalda á bindandi forúrskurðum um skattamál.„Vandinn er að mörgu leyti sá að þær brotalamir sem lýst er hér að ofan gera þeim fyrirtækjum erfitt fyrir sem íslenskt efnahagslíf hefur síst efni á að missa. Með breytingum á skattkerfinu sem draga úr samkeppnishæfi m.v. það sem tíðkast erlendis er í raun verið að stíga skref í þá átt að hrekja fyrirtæki úr landi," segir í álitinu.
Mest lesið „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Neytendur Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Viðskipti innlent Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Viðskipti innlent Lækkunin skilaði sér hjá öllum nema Costco Neytendur Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Viðskipti innlent Ósýnilegir múrar: „Ekki nóg að segja bara að fólk eigi að vinna saman“ Atvinnulíf Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Þórir og Ómar ganga til liðs við Vettvang Sjá meira