FME: Athæfi starfsmanna NBI í ósamræmi við lög 27. maí 2010 13:01
Fjármálaeftirlitið (FME) telur að athæfi starfsmanna Landsbankans (NBI) í undanfara stjórnarkjörs í Íslenska lífeyrissjóðnum s.l. haust sé ekki í samræmi við heilbrigða og eðlilega viðskiptahætti í skilningi laga um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi. Þetta kemur fram á vefsíðu FME en þann 23. október sl. var framkvæmd vettvangskönnun í tengslum við stjórnarkjör Íslenska lífeyrissjóðsins vegna kosningar stjórnar hans á aukaársfundi 19. október 2009.Athugunin beindist sérstaklega að umboðssöfnun starfsmanna Landsbankans á atkvæðum annarra starfsmanna bankans sem jafnframt eru sjóðfélagar Íslenska lífeyrissjóðsins. „Í þessu sambandi verður að hafa í huga þau sérstöku tengsl sem eru á milli Íslenska lífeyrissjóðsins og Landsbankans, sem byggja á rekstrarsamningi þessara aðila frá árinu 2007. Sá samningur kveður á um að Landsbankinn annist allan daglegan rekstur sjóðsins. Þá skipar Landsbankinn framkvæmdastjóra lífeyrissjóðsins á grundvelli ofangreinds rekstrarsamnings og er framkvæmdastjórinn launaður starfsmaður Landsbankans, en ekki lífeyrissjóðsins sjálfs," segir í úttekt FME. „Fjármálaeftirlitið sendi regluverði NBI hf. og Íslenska lífeyrissjóðnum bréf um niðurstöðu könnunarinnar og kallaði eftir sjónarmiðum þeirra og veitti tækifæri til andmæla vegna hennar. Svarbréf lífeyrissjóðsins barst 29. mars sl. Niðurstaða könnunar Fjármálaeftirlitsins leiddi í ljós að þeir aðilar sem áttu þátt í að safna umboðum eru starfsmenn bankans og að þeir höfðu notfært sér aðgang, í gegnum netföng bankans, að fjölda sjóðfélaga sem aðrir frambjóðendur höfðu ekki. Fjármálaeftirlitið dregur í efa að um sjóðfélagalýðræði sé í raun að ræða þegar aðilum í framboði er mismunað á þennan hátt. Fjármálaeftirlitið gerði lífeyrissjóðnum grein fyrir að það telur að ofangreint athæfi starfsmanna bankans sé ekki í samræmi við heilbrigða og eðlilega viðskiptahætti í skilningi laga um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi. Einnig telur Fjármálaeftirlitið að stjórnarmenn Íslenska lífeyrissjóðsins sem jafnframt eru starfsmenn Landsbankans kunni að vera vanhæfir til ákvarðana sem varða Landsbankann, bæði í fjárfestingum og einnig sem rekstraraðila sjóðsins. Við slíkar aðstæður er ofangreindum stjórnarmönnum óheimilt að taka þátt í undirbúningi, meðferð eða úrlausn þeirra mála samanber stjórnsýslulög. Fjármálaeftirlitið telur það óæskilegt að meirihluti stjórnar lífeyrissjóðs geti orðið vanhæfur til meðferðar einstakra mála, sem ætla má að þurfi oft að koma til ákvörðunar stjórnarinnar. Fjármálaeftirlitið mæltist til þess að stjórn Íslenska lífeyrissjóðsins beitti sér fyrir því að ofangreint verklag við umboðssöfnun til að velja stjórnarmenn „vinveitta" bankanum yrði ekki viðhaft aftur. Þess má geta að í svari stjórnar lífeyrissjóðsins til Fjármálaeftirlitsins kom m.a. fram að stjórnin telur sér ekki heimilt að gefa út leiðbeiningar um það hverjir geti boðið sig fram til stjórnar eða komið í veg fyrir atkvæðasöfnun í aðdraganda kosninga. Þá séu framboð til stjórnar lífeyrissjóðsins frjáls og það sé ekki stjórnar sjóðsins að setja skorður við því hvernig menn kynna framboð sín. Sjóðurinn muni því ekki beita sér fyrir breyttu verklagi á meðan lög og samþykktir sjóðsins eru óbreytt. Fjármálaeftirlitið ítrekar í því sambandi að það telur að ofangreint athæfi starfsmanna bankans sé ekki í samræmi við heilbrigða og eðlilega viðskiptahætti í skilningi laga um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi.
Mest lesið Eru karlmenn í jakkafötum á undanhaldi? Atvinnulíf Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Viðskipti innlent Umsóknum synjað og kurr í greininni Viðskipti innlent Jóhann Ingi til Securitas Viðskipti innlent Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Viðskipti innlent Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Viðskipti innlent Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Viðskipti innlent Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Viðskipti innlent Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Viðskipti innlent Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Origo kaupir Maven Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði „Það sér hver heilvita maður að það er algjör tímaskekkja“ Forvarnarsamtök fagna en vínsalar láta dóminn ekki stoppa sig Ein belja varð Vilhjálmi í Smáríkinu að falli Krefja Björgólf og Birgi um hundruð milljóna vegna njósnanna Þrettán prósent hækkun á bensíni að mestu vegna Íransstríðs Taka loks við reiðufé tuttugu mánuðum frá opnun Ballið búið hjá Húrra Reykjavík Hvað á að gera við fermingarpeningana? Farþegum fjölgaði á milli ára í mars Sjá meira