Viðskipti innlent

Iceland Glacial útvegar 900 milljónir í nýtt rekstrarfé

Iceland Glacial, fyrirtæki Jóns Ólafssonar, hefur útvegað 8 milljónir dollara eða rétt tæpar 900 miljónir kr. í nýtt rekstrarfé. Þetta kemur fram á vefsíðunni BevNET.com en þar er haft eftir Jóni að þetta fé hafi komið frá „vinum og vandamönnum".

Þetta fjármagn á að nota til að auka umsvif Iceland Glacial í Bandaríkjunum og aðstoða við markaðssetniningu fyrirtækisins í Kína en hún hefst formlega í janúar n.k.

Jón Ólafsson segir að markmiðið í Bandaríkjunum sé að auka við fjölda starfsmanna einkum í ríkjunum Kaliforníu, New York og Flórída ásamt nærliggjandi mörkuðum í Arizona, Texas og Nýju Mexikó.

Fram kemur að Anheuser-Busch, sem dreifir Iceland Glacial í Bandaríkjunum og á 20% hlut í fyrirtækinu hafi ekki komið við sögu í öflun hins nýja rekstrarfjár.

Hvað Kína varðar hefur Iceland Glacial unnið að því að markaðssetja sig þar undanfarið hálft annað ár. Jón segir Kína spennandi verkefni en þar í landi sé annar stærsti markaður heims fyrir átappað vatn.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×