„Fjárhættuspil“ lífeyrissjóða til rannsóknar hjá FME Þorbjörn Þórðarson skrifar 13. október 2010 19:15
Grunur leikur á að tveir lífeyrissjóðir hafi brotið lög með viðskiptum með skuldatryggingar á Glitni og Kaupþing og er málið til rannsóknar hjá Fjármálaeftirlitinu. Viðskiptin hafa verið kölluð „glórulaust fjárhættuspil." Eins og fréttastofa greindi frá í gærkvöldi tóku Almenni lífeyrissjóðurinn og Lífeyrissjóður verkfræðinga þátt í viðskiptum með skuldatryggingar á Kaupþing og Glitni með milligöngu Landsbankans við svissneska bankann UBS fyrir bankahrunið. Þessu var þannig stillt upp að ef bankarnir tveir féllu, græddi svissneski bankinn, en ef íslensku bankarnir héldu velli til ársins 2013 þá fengju fengju lífeyrissjóðirnir vexti á fjárfestinguna. Lífeyrisjóðirnir töpuðu milljörðum króna á þessu ævintýri, en svissneski bankinn græddi, þegar íslensku bankarnir fóru á hliðina. Þorbergur Steinn Leifsson, sem er í lífeyrissjóði verkfræðinga, hefur kallað viðskipti með þessar skuldatryggingar „glórulaust fjárhættuspil." Nú eru vísbendingar um að þessi viðskipti hafi hreinlega verið ólögleg. Því í lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða er tæmandi talning á því í hverju lífeyrissjóðir mega fjárfesta og þar segir að lífeyrissjóðum sé aðeins heimilt að fjárfesta í afleiðum sem dragi úr áhættu viðkomandi lífeyrissjóðs. Fram kemur í skriflegu svari Fjármálaeftirlitsins við fyrirspurn fréttastofu að skuldatrygging ein og sér verði vart flokkað annað en sem afleiða. Og að ef lífeyrissjóðir fjárfesti í skuldatryggingum verði þeir að geta sýnt fram á að það sé til þess að draga úr áhættu viðkomandi lífeyrissjóðs. Samkvæmt heimildum fréttastofu er mál Almenna lífeyrissjóðsins og Lífeyrissjóðs verkfræðinga nú til rannsóknar hjá Fjármálaeftirlitinu vegna gruns um brots á lögunum, en þau varða samkvæmt lögunum sektum eða fangelsi í allt að einu ári. Ef það verður niðurstaða FME að lífeyrissjóðirnir sem eigi í hlut hafi gerst brotlegir við lögin verður málinu vísað til sérstaks saksóknara.
Tengdar fréttir „Glórulaust fjárhættuspil“ lífeyrissjóða hugsanlega ólöglegt Viðskipti Almenna lífeyrissjóðsins og Lífeyrissjóðs verkfræðinga með skuldatryggingar á Kaupþing og Glitni sem hafa verið kölluð „glórulaust fjárhættuspil" voru hugsanlega ólögleg. 13. október 2010 12:15 Töpuðu milljörðum í áhættusömum viðskiptum Tveir lífeyrissjóðir, Lífeyrissjóður verkfræðinga og Almenni lífeyrissjóðurinn, töpuðu milljörðum í áhættusömum viðskiptum rétt fyrir hrun sem kunna að hafa verið ólögleg. Glórulaust fjárhættuspil, segir sjóðsfélagi. 12. október 2010 18:30 Mest lesið Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Viðskipti innlent Bandaríkjamenn banna innflutning dróna Viðskipti erlent Virðist ekki vera hægt á Íslandi Viðskipti innlent Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Viðskipti innlent „Áhyggjuefni ef fyrirtækin mæta þessu með semingi“ Neytendur Flogin frá Icelandair til Nova Viðskipti innlent Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Bíóinu í Álfabakka lokað í janúarlok Viðskipti innlent Sigga Lund lenti illa í „Vefstól Svanhildar“ og varar aðra við Neytendur Fleiri fréttir Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sjá meira
„Glórulaust fjárhættuspil“ lífeyrissjóða hugsanlega ólöglegt Viðskipti Almenna lífeyrissjóðsins og Lífeyrissjóðs verkfræðinga með skuldatryggingar á Kaupþing og Glitni sem hafa verið kölluð „glórulaust fjárhættuspil" voru hugsanlega ólögleg. 13. október 2010 12:15
Töpuðu milljörðum í áhættusömum viðskiptum Tveir lífeyrissjóðir, Lífeyrissjóður verkfræðinga og Almenni lífeyrissjóðurinn, töpuðu milljörðum í áhættusömum viðskiptum rétt fyrir hrun sem kunna að hafa verið ólögleg. Glórulaust fjárhættuspil, segir sjóðsfélagi. 12. október 2010 18:30