Töpuðu milljörðum í áhættusömum viðskiptum Ingimar Karl Helgason skrifar 12. október 2010 18:30
Tveir lífeyrissjóðir, Lífeyrissjóður verkfræðinga og Almenni lífeyrissjóðurinn, töpuðu milljörðum í áhættusömum viðskiptum rétt fyrir hrun sem kunna að hafa verið ólögleg. Glórulaust fjárhættuspil, segir sjóðsfélagi. Greint er frá því í Rannsóknarskýrslu Alþingis, að Lífeyrissjóður verkfræðinga og Almenni lífeyrissjóðurinn, hafi tekið þátt í viðskiptum með svonefndar skuldatrygginar á Glitni og Kaupþing, með milligöngu Landsbankans, við svissneskan banka UBS. Þetta var í lok mars, hrunárið 2008. Þau virðast hafa verið með þeim hætti að lífeyrissjóðirnir sömdu við svissneska bankann um skuldabréf, sem tengdist lánshæfi Kaupþings og Glitnis. Féllu bankarnir, græddu svisslendingarnir, en ef íslensku bankarnir héldu velli til 2013 þá fengju lífeyrissjóðirnir vexti á fjárfestinguna, ef frásögn Rannsóknarnefndarinnar er rétt skilin. Til að gera langa sögu stutta þá töpuðu lífeyrisjóðirnir milljörðum á þessu, en svissneski bankinn græddi, þegar íslensku bankarnir fóru á hausinn. Upphafleg fjárfesting þeirra var samanlagt einn og hálfur milljarður, en síðar á árinu settu þeir meira í brallið. Þorbergur Steinn Leifsson, sem er í lífeyrissjóði verkfræðinga, hefur gagnrýnt þessi viðskipti harðlega. Segir þetta hafa verið gersamlega glórulaust fjáhættuspil þar sem veðjað hafi verið gegn allri almennri skynsemi. Og hann spyr: Hvaða upplýsingar hafði stjórn lífeyrissjóðsins sem hinn reyndi svissneski banki hafði ekki um íslensku bankana? Samskipti Þorbergs Steins og Fjármálaeftirlitsins gefa enn fremur til kynna að gjörningarnir hafi verið ólöglegir. En samningarnir virðast ekki hafa verið til þess að draga úr áhættu sjóðanna, heldur fremur auka hana. Rannsóknarnefndin segir að vorið 2008 hafi markaður með skuldatryggingar talið verulegar líkur á greiðslufalli bankanna. Fréttastofa hefur ekki náð í Sigurði Áss Grétarssyni, sem var stjórnarformaður Lífeyrissjóðs verkfræðinga á þessum tíma. Bjarki A. Brynjarsson, núverandi stjórnarformaður, segir að verið sé að fara yfir málið hjá sjóðnum.
Mest lesið Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Viðskipti innlent Virðist ekki vera hægt á Íslandi Viðskipti innlent Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Viðskipti innlent Verðbólga eykst verulega Viðskipti innlent „Áhyggjuefni ef fyrirtækin mæta þessu með semingi“ Neytendur „Ég verð að segja að ég er svolítið hlessa“ Neytendur Flogin frá Icelandair til Nova Viðskipti innlent Frosti og Arnþrúður fá styrki Viðskipti innlent Bandaríkjamenn banna innflutning dróna Viðskipti erlent Fleiri fréttir Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sjá meira