Næstum 100 ára kona tapaði ævisparnaðinum á Landsbankanum Þorbjörn Þórðarson skrifar 13. janúar 2010 18:45
Tæplega hundrað ára kona á eynni Guernsey tapaði stórum hluta ævisparnaðarins eftir bankahrunið þar sem peningarnir voru í vörslu Landsbankans. Íbúar á Guernsey njóta ekki sömu verndar og aðrir breskir ríkisborgarar sem hafa fengið tap sitt á Icesave greitt að fullu. Landsbankinn keypti Cheshire viðskiptabankann í Guernsey í ágúst 2006 og breyttist hann í kjölfarið í Landsbankinn Guernsey. Í heimildarmynd Gunnars Sigurðssonar leikstjóra um íslenska bankahrunið, „Maybe I should Have" sem frumsýnd verður eftir viku eru viðtöl við sparifjáreigendur á Guernsey sem geymdu sparifé sitt í Landsbankanum á eynni. Ekki er um að ræða viðskiptavini á Icesave-reikningunum í Bretlandi, en þeir fengu allt sitt greitt frá breska ríkinu. Guernsey er í sjálfstæðu konungssambandi við bresku krúnuna en heyrir að öðru leyti ekki til Bretlands og er ekki í Evrópusambandinu. Stjórn eyjunnar er í höndum landstjóra sem er tilnefndur af Bretlandsdrottningu. Lagareglur sem þar gilda eru ekki alfarið þær sömu og í Bretlandi. Breska ríkið sá sig því ekki knúið til að greiða þessum sparifjáreigendum tap sitt, þar sem þeir eru ekki Bretar í þröngum skilningi. Viðskiptavinir Landsbankans í Guernsey hafa fengið helming greiddan til baka frá þrotabúi bankans, þ.e skilanefndinni, en eftir stendur að þetta fólk tapaði helmingi sparifjár síns vegna Landsbankans. Það er eðlilega svekkt og miður sín af þessum sökum. Elisabeth Castle er 98 ára gömul, hún var í góðri trú og fékk ekki tilkynningu fyrr en eftir á að Ísledingar hefðu keypt hverfisbankann hennar. Lynn Bewe hafði geymt allan sparnað sinn, "öryggisnetið" eins og hún orðar það á reikningi í Landsbankanum. Helmingurinn er farinn og óvíst hvort nokkuð fáist til baka.
Mest lesið Loka í Kringlunni Viðskipti innlent Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Viðskipti innlent Ekki allir geta sagt: „Ég græddi fúlgur fyrir fyrirtækið í dag“ Atvinnulíf Meiriháttar truflanir á greiðslumiðlun á Norðurlöndum Viðskipti erlent Nýtt á Íslandi: Auglýsingalausn sem sameinar sjónvarp og samfélagsmiðla Samstarf Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Viðskipti innlent Skatturinn birtir álagningu í dag Viðskipti innlent Kaffitár hressir ferðalanga sem stoppa á Olís Samstarf Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Viðskipti erlent Enn ríður Indó á vaðið Viðskipti innlent Fleiri fréttir Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Þórir og Ómar ganga til liðs við Vettvang Farangursvagni ekið utan í flugvél og flugferð aflýst María nýr stjórnarformaður SVEIT Ný Lindex verslun opnuð í Kringlunni Ráðinn forstjóri Nathan Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Spá 0,25 prósentustiga hækkun stýrivaxta Sjá meira