Skoðun

Félagshyggjustjórn í Reykjavíkurborg

Björgvin Guðmundsson skrifar
Samfylkingin og Besti flokkurinn hafa myndað meirihluta í borgarstjórn Reykjavíkur, félagshyggjustjórn. Jón Gnarr lýsti því yfir að Besti flokkurinn ætti fremur samleið með Samfylkingunni en öðrum flokkum enda aðhylltist Besti flokkurinn félagshyggju eins og Samfylkingin. Jón Gnarr er borgarstjóri en Dagur B. Eggertsson er formaður borgarráðs. Ég hygg, að gott jafnvægi sé milli þessara tveggja leiðtoga stjórnarflokka borgarinnar.

Bæta á hag þeirra verst settuÍ málefnasamningi nýja meirihlutans kennir ýmissa grasa og áhrif Besta flokksins eru greinileg. En mestu máli skiptir, að sjónarmið félagshyggju koma skýrt fram. Nýi meirihlutinn ætlar að bæta hag þeirra, sem verst eru staddir með auknum framlögum frá félagsþjónustunni og aðstoða á útigangskonur, fá þeim húsaskjól. Stefnt er að því að hækka framfærsluviðmiðið. En stærsta málið er auknar ráðstafanir Reykjavíkurborgar til atvinnuaukningar, t.d. með auknum viðhaldsverkefnum.

Meirihlutinn ætlar að stöðva útþenslu borgarinnar og þétta byggðina. Útþensla borgarinnar er gífurlega kostnaðarsöm og það má spara mikið fé með því að þétta byggðina. Taka á Vatnsmýrina smátt í smátt í notkun, í byrjun undir sérstök verkefni, sem tengjast rannsóknar- og þekkingarverkefnum. Síðar er stefnt að íbúðabyggð í Vatnsmýri.

Sameining og fækkun nefndaNýi meirihlutinn boðaði strax við valdatöku sína sameiningu og fækkun nefnda. Ákveðin verkefni, sem áður heyrðu undir nefndir verða færð undir borgarráð. Síðar er ætlunin að sameina stofnanir. Oddný Sturludóttir verður formaður menntaráðs og fer m.a. með grunnskólamál og leikskólamál. Besti flokkurinn fær formennsku í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur. Björk Vilhelmsdóttir frá Samfylkingunni er formaður velferðarráðs. Og Hjálmar Sveinsson er formaður stjórnar Faxaflóahafna. Nýja stjórnin boðaði, að fram færi nákvæm athugun á fjármálum og fjárhagsstöðu Orkuveitunnar.

Hanna Birna Kristjánsdóttir er forseti borgarstjórnar. Nýi meirihlutinn kom sér saman um að bjóða minnihlutanum þetta embætti og innsigla þannig ný vinnubrögð í borgarstjórn þ.e. aukið samstarf milli meirihluta og minnihluta. Sóley Tómasdóttir frá VG verður fyrsti varaforseti borgarstjórnar. Björk Vilhelmsdóttir (SF) verður annar varaforseti. Auk þessa fær minnihlutinn einnig formennsku í nefndum. Þetta hefur ekki áður gerst í borgarstjórn, þ.e. að meirihlutinn léti minnihlutann fá veigamikil embætti. Hér er því um sögulegan atburð að ræða í sögu borgarstjórnar og verður það væntanlega upphaf að bættum og betri vinnubrögðum. Meirihluti og minnihluti munu væntanlega vinna saman að brýnum verkefnum í þágu borgarbúa. Of snemmt er að spá um hvernig nýja meirihlutanum mun ganga en hann hefur mörg góð áform á prjónunum. Lítið er sagt um fjármál í stefnuskránni og því ekki vitað hvort útsvörin verða óbreytt eða ekki.

Þriðja félagshyggjustjórninHinn nýi meirihluti í Reykjavík er þriðja félagshyggjustjórnin í borgarstjórn eftir meira en hálfrar aldar valdaskeið Sjálfstæðisflokksins í borginni. Fyrsta félagshyggjustjórnin komst til valda í Reykjavík árið 1978. Það var meirihluti Alþýðuflokksins, Alþýðubandalagsins og Framsóknarflokksins. Alþýðuflokkurinn hafði 2 borgarfulltrúa, Alþýðubandalagið 5 og Framsókn var með 1. Ég var þá oddviti Alþýðuflokksins í borgarstjórn. Samkomulag náðist milli flokkanna um samvinnu á mjög skömmum tíma. Ég lagði til strax í upphafi, að samvinnan yrði á jafnræðisgrundvelli þrátt fyrir, að flokkarnir væru misstórir að borgarfulltrúatölu. Það var samþykkt. Þetta þýddi að völdum og áhrifum var skipt jafnt. Þess vegna fengu allir 3 flokkarnir 1 fulltrúa hver í borgarráði og þannig var jafnræðið milli flokkanna innsiglað í borgarráði. Ákveðið var að formennska borgarráðs „roteraði" á milli flokkanna. Alþýðuflokkurinn fékk formennsku í borgarráði fyrsta árið. Oddviti Alþýðubandalagsins varð forseti borgarstjórnar, oddviti Alþýðuflokksins 1. varaforseti og oddviti Framsóknar 2. varaforseti. Nefndum og formennsku í þeim var skipt jafnt milli flokkanna. Meirihlutaflokkarnir höfðu unnið saman í minnihluta um margra ára skeið og flutt sameiginlegar tillögur við afgreiðslu fjárhagsáætlana. Þess vegna lá sameiginlegur málefnagrundvöllur fyrir.

Með tilkomu R-listans 1994 komst félagshyggjustjórn öðru sinni til valda í Reykjavík. Aðilar að R-listanum voru í upphafi Alþýðuflokkur, Alþýðubandalag, Framsóknarflokkur og Samtök um kvennalista. R-listinn var við völd í Reykjavík í 3 kjörtímabil eða í 12 ár. R-listinn framkvæmdi mörg merk umbótamál í Reykjavík og markaði djúp spor. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir veitti R-listanum örugga forustu. Þriðja félagshyggjustjórnin í Reykjavík er síðan meirihluti Besta flokksins og Samfylkingarinnar, sem nú hefur tekið við völdum í Reykjavík.

Vonandi gengur samstarf Besta flokksins og Samfylkingarinnar í Reykjavík vel. Ljóst er þó að fulltrúar Besta flokksins eru óvanir stjórnmálum og stjórnunarstörfum. Samfylkingin verður að leggja til reynsluna en Besti flokkurinn leggur til nýjungar og ný vinnubrögð. Síðan er að sjá hvernig til tekst.




Skoðun

Skoðun

Um dánaraðstoð

Steinunn Þórðardóttir,Oddur Steinarsson,Thelma Kristinsdóttir,Katrín Ragna Kemp,Magdalena Ásgeirsdóttir,Margrét Ólafía Tómasdóttir,Ragnar Freyr Ingvarsson,Teitur Ari Theodórsson,Theódór Skúli Sigurðsson skrifar

Skoðun

Hún

Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar

Sjá meira


×