Hvatti viðskiptavini til stöðutöku gegn krónunni Þorbjörn Þórðarson skrifar 2. nóvember 2010 18:57
Glitnir banki hvatti viðskiptavini sína til að taka stöðu gegn krónunni í Morgunkorni greiningardeildar bankans frá árinu 2007 á sama tíma og stór huti viðskiptavina Glitnis átti allt sitt undir gengisstöðugleika íslensku krónunnar. Á föstudaginn sl. féll dómur í Héraðsdómi Suðurlands á Selfossi í máli sem Íslandsbanki höfðaði á hendur tveimur viðskiptamönnum sínum vegna ógreidds skuldabréfs, en meðal málsástæða þeirra í greinargerð var að um væri að ræða ólögmætt gengistryggt lán. Hins vegar féll lögmaðurinn frá þessu við aðalmeðferð málsins og féllst á að um væri að ræða erlent lán, eða lán í erlendum gjaldmiðli. Því komust málsástæður á þeim grundvelli að um væri að ræða gengistryggt lán ekki að, en skuldarinn var dæmdur til að greiða eftirstöðvar skuldabréfsins. Málinu verður áfrýjað. Meðal gagna sem stefndu lögðu fram í málinu var fréttabréf greiningardeildar Glitnis, svokallað Morgunkorn, frá 11. október 2007 sem er býsna athyglisvert. En þar segir orðrétt: „Gengisvísitala mun nálgast vísitölugildið 111 í kringum áramótin samkvæmt nýrri spá en þá ætti dollarinn að standa rétt undir 60 krónum og evran í tæpum 83 krónum. Um það leiti fer stöðutaka í erlendum myntum að verða vænlegur kostur að mati okkar." Þarna var gengi krónunnar í raun í hámarki og með öðrum orðum var greiningardeild bankans að segja: gengið fellur, tryggið ykkur. Lögmenn skuldarans telja að Glitnir banki, forveri Íslandsbanka, hafi verið með þessari útgáfu greiningardeildarinnar að hvetja stóra viðskiptavini sína til þess að taka stöðu gegn krónunni, með því að taka stöðu í erlendum myntum á sama tíma og þorri viðskiptavina með gengistryggð lán átti allt sitt undir gengisstöðugleika íslensku krónunnar. Lögmenn skuldarans lögðu fram gögn þessu til stuðnings í málinu, en dómarinn tók hins vegar ekki tillit til þeirra. Í dómi Héraðsdóms Suðurlands skautar dómarinn framhjá þessu og telur að með spánni hafi Íslandsbanki ekki unnið gegn hagsmunum skuldaranna í málinu eða rofið við þá trúnað. Samkvæmt upplýsingum sem fréttastofa fékk í dag frá greiningardeild Íslandsbanka er ekki hægt að fallast á að með þessu hafi bankinn sjálfur hvatt til þess að tekin yrði staða gegn krónunni. Greiningardeildin hafi verið sjálfstæð og spár og ráðleggingar hennar hafi verið settar fram með fyrirvara um að þær ákvarðanir sem teknar væru á grundvelli hennar væru á ábyrgð þess sem tæki þær.
Mest lesið „Krakkar sem gistu hjá okkur vissu ekki hvað var að gerast!“ Atvinnulíf Icelandair segir upp 57 flugmönnum Viðskipti innlent Brimborg lækkar verð á rafbílnum Volvo EX30 Samstarf Nýr Peugeot E-3008 rafbíll frumsýndur í Brimborg Samstarf Hinn almenni borgari þurfi ekki að dæla í sig steinefnum Neytendur Blár Opal seldist á fimmtán þúsund Neytendur Festi fær að kaupa Lyfju Neytendur Leiðtogakulnun: Þegar yfirmaðurinn er alveg búinn á því Atvinnulíf „Sársaukafullt að sjá“ IKEA vasa dýrari í Góða hirðinum Neytendur Danir höndla ekki kóresku pakkanúðlurnar Viðskipti erlent Fleiri fréttir Icelandair segir upp 57 flugmönnum Húsnæði B5 auglýst til leigu enn og aftur Selja höfuðstöðvarnar sem voru rýmdar vegna myglu „Betur borgandi ferðamenn“ enginn bjargvættur ferðaþjónustunnar Vetrarþjónustan þungur baggi á borginni Gerður Björt nýr framkvæmdastjóri rekstrarþjónustu Wise Kristján Andrésson gengur til liðs við Arion banka Running Tide segir upp öllu starfsfólki á Íslandi Stefnt á að virkjun Hvalár geti hafist eftir tvö ár Bjór, bingó og bíó í Vinabæ á ný Frederiksen víkur fyrir Bird Áhöfnum tveggja skipa Þorbjarnar sagt upp Sigurður Tómasson til liðs við Origo Hrefna og Unnur til Novum Easyjet flýgur frá Akureyri til Manchester í vetur 500 manns sóttu um störf hjá OCHE Reykjavík Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Skuldar þrotabúi föður síns fleiri milljarða Fleiri farþegar og betri nýting Gengu frá 135 milljarða samningi um endurfjármögnun skulda Fjárfesta fyrir þrjá milljarða í Reykjanesbæ og Hafnarfirði Ein og hálf milljón farþega á fyrstu fimm mánuðum ársins Ingibjörg Ösp yfir nýrri rekstrarráðgjöf Expectus Þrír nýir stjórnendur hjá Festi „Að fara í slag við þessa risa er nánast ómögulegt“ Fjórir sérfræðingar til liðs við Helix Vilhjálmur Hilmarsson nýr hagfræðingur Visku Heimtu hlutinn úr helju og verða stærstu einkafjárfestarnir Varar við þenslu á byggingamarkaði Ráðinn tækni- og þróunarstjóri Defend Iceland Sjá meira