Engin áætlun til um afnám hafta Þorbjörn Þórðarson skrifar 2. nóvember 2010 20:21
Stjórnvöld hafa sem stendur enga áætlun um afnám gjaldeyrishaftanna, en Seðlabankinn tilkynnti að hann hefði horfið frá fyrri áætlun í ræðu sem flutt var yfir lokuðum hópi hinn 7. október síðastliðinn. Forsætisráðherra segir að unnið sé að því að afnema höftin sem fyrst. Arnór Sighvatsson, aðstoðarseðlabankastjóri, upplýsti á fundi með Íslenskum verðbréfum hinn 7. október síðastliðinn að Seðlabankinn hefði horfið frá fyrri tímaáætlun um afnám haftanna í þrepum. Á þessum tímapunkti hafði markaðsaðilum ekki verið tilkynnt um áform Seðlabankans, en ræða Arnórs var birt á vef Seðlabankans. Sem stendur hafa því stjórnvöld enga áætlun um afnám haftanna, eftir því sem fréttastofa kemst næst, en Seðlabankinn hefur samt verið að hleypa einstökum aðilum og verkefnum framhjá höftunum að undanförnu. Við greindum fyrst frá því í fréttum okkar á föstudag að Samtök Iðnaðarins hefðu gert samkomulag við Seðlabankann um tilraunaverkefni um að hleypa aflandskrónum sem sitja fastar í Lúxemborg í fjárfestingu á Íslandi, en það hefur verið óheimilt til þessa að flytja íslenskar krónur af erlendum bankareikningum hingað heim vegna haftanna. Svo í dag tilkynnti Össur hf. að Seðlabankinn hefði veitt eigendum hlutabréfa í fyrirtækinu heimild til að flytja þau úr íslensku kauphöllinni og í Kauphöllina í Kaupmannahöfn og fá þau skráð samhliða í dönskum krónum en markaðsaðilar furðuðu sig á því í dag að heimildin ætti við um Össur eitt fyrirtækja. Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, segir að verið sé að skoða hvaða leiðir eru færar til að koma okkur sem fyrst út úr gjaldeyrishöftunum. „Við erum búin að byggja upp mjög öflugan gjaldeyrisforða sem er að hjálpa okkur að komast út úr þessari kreppu ekki síst núna þegar við erum að skoða það með hvaða hætti og hvernig við getum, á sem stystum tíma, komist út úr gjaldeyrishöftunum," segir Jóhanna.
Mest lesið Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Viðskipti innlent Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Viðskipti innlent Ísbúð Vesturbæjar í Skipholti lokað Neytendur Ella frá Marel til Landsbankans Viðskipti innlent Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Frá fjósinu í Hörpu – fjölskyldubú hlýtur viðurkenningu Framúrskarandi fyrirtæki Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Viðskipti innlent Fréttirnar sem fylgja okkur í vinnuna Atvinnulíf Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Viðskipti innlent Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Neytendur Fleiri fréttir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Sjá meira