Landsbankinn: Úrskurðurinn eyðir óvissu 25. janúar 2010 09:59 „
Úrskurðurinn í ofangreindu máli hefur að öllu óbreyttu í för með sér að eytt verður óvissu um samkeppnisréttarlegt rekstrarumhverfi þeirra atvinnufyrirtækja sem bankinn fer með yfirráð yfir."Þetta segir í tilkynningu frá Landsbankanum í framhaldi af úrskurði áfrýjunarnefndar samkeppnismála sem birtur var fyrir helgina.Tilkynningin í heild hljóðar svo: „Áfrýjunarnefnd samkeppnismála staðfestir með úrskurði sínum, sem upp var kveðinn. föstudaginn 22. janúar, samruna Teymis hf. og Eignarhaldsfélagins Vestia ehf. sem er dótturfyrirtæki Landsbankans.Nefndin segir í úrskurði sínum að hún telji ekki lagagrundvöll til að ógilda samrunann eins og áfrýjandi fór fram á og fallist hún á rök Samkeppniseftirlitsins um það. Áfrýjunarnefndin fellst hins vegar á varakröfu áfrýjanda í málinu og leggur fyrir Samkeppniseftirlitið að setja samrunanum skilyrði er varða meðal hversu lengi Vestia á hlutafé í Teymi.Eignarhaldsfélagið Vestia var stofnað af hálfu Landsbankans til að takast á við fordæmalausar aðstæður, þar sem augljóst var og er, að fjöldi fyrirtækja mun ekki geta greitt af skuldum sínum við banka og aðrar lánastofnanir og þau verða því eign kröfuhafa.Með stofnun Vestia og aðskilnaði þess frá bankanum nást fram þau aðalmarkmið, að hámarka heimtur bankans af skuldsettum fyrirtækjum og auka verðmæti hlutafjár hans annarsvegar og halda tímabundnu eignarhaldi á fyrirtækjum aðskildum frá eiginlegri bankastarfsemi hinsvegar. Um leið er fylgt þeim fyrirmælum stjórnvalda um að halda skuli lífi í fyrirtækjum sé þess nokkur kostur.Samkeppnisyfirvöld hafa skoðað öll mál Vestia rækilega og aldrei gert neinar athugasemdir við fyrirkomulag fyrirtækisins, stjórnartengsl við bankann eða aðra þætti rekstrarins. Bankinn og Vestia hafa frá upphafi lagt sig fram um að vinna náið með samkeppnisyfirvöldum og aldrei aðhafst neitt sem þau ekki hafa samþykkt.Úrskurðurinn í ofangreindu máli hefur að öllu óbreyttu í för með sér að eytt verður óvissu um samkeppnisréttarlegt rekstrarumhverfi þeirra atvinnufyrirtækja sem bankinn fer með yfirráð yfir. Það er bankanum mikið kappsmál, sem langstærsta viðskiptabanka íslenskra fyrirtækja, að reynt verði eftir föngum að koma í veg fyrir neikvæð áhrif af slíku eignarhaldi á íslenskt atvinnulíf við þær sérstæðu kringumstæður sem nú ríkja.Jafnframt verður að virða þá hagsmuni bankans er varða endurheimtur lána til slíkra fyrirtækja enda eru miklir og víðtækir hagsmunir í húfi. Munu Landsbankinn og Vestia hér eftir sem hingað til starfa náið með samkeppnisyfirvöldum og leggja sitt lóð á vogarskálarnar við að skapa það umhverfi sem best hentar."
Mest lesið „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Live verður Lifa Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira