Greining reiknar með óbreyttum vöxtum Seðlabankans 25. janúar 2010 10:47
Vaxtaákvörðun peningastefnunefndar SÍ verður kynnt á miðvikudaginn og reiknar greining Íslandsbanka með því að nefndin ákveði að halda vöxtum bankans óbreyttum að þessu sinni. Þetta kemur fram í Morgunkorni greiningarinnar. Þar segir að í yfirlýsingu peningastefnunefndarinnar vegna síðustu vaxtaákvörðunar kom fram að haldist gengi krónunnar stöðugt eða styrkist og verðbólga hjaðni í samræmi við spár, ættu forsendur fyrir frekari slökun peningalegs aðhalds að vera áfram til staðar. Við síðustu vaxtaákvörðun stóð evran í tæplega 183 krónum en er nú um 180 krónur. Verðbólgan var þá 8,6% og fór niður í 7,5% í desember sem var í samræmi við spár. „Ef spá okkar um 0,9% hækkun vísitölu neysluverðs í janúar gengur eftir mun verðbólgan hækka í 7,9% sem er þó engu að síður minni verðbólga en var við síðustu vaxtaákvörðun. Virðast þar af leiðandi þau tvö skilyrði sem nefndin setur fyrir frekari slökun peningalegs aðhalds hafi skapast frá síðustu vaxtaákvörðun nefndarinnar," segir í Morgunkorninu. „En að fleiru er að hyggja. Ákvörðun forsetans um að vísa Icesave-lögunum í þjóðaratkvæðagreiðslu hefur skapað verulega óvissu um framvindu efnahagsáætlunar íslenskra stjórnvalda og AGS sem og lánin frá Norðurlöndunum. Í kjölfarið hefur áhættuálag á íslenska fjáreignir hækkað verulega og lánshæfismat ríkissjóðs versnað." Greiningin segir ennfremur að áætlað var að annarri endurskoðun áætlunarinnar yrði lokið fyrir janúarlok en teljast má líklegt að endurskoðunin muni frestast fram yfir þjóðaratkvæðagreiðsluna um Icesave þann 6. mars. „Teljum við að sú mikla óvissa sem hefur skapast í kjölfar ákvörðun forsetans valdi því að bankinn ákveði að halda vöxtum bankans óbreyttum nú, þó svo að forsendur fyrir frekari slökun peningalegs aðhalds finnist í þróun verðbólgu og gengi krónunnar. Við útilokum þó ekki smávægilega lækkun, sérstaklega í ljósi ummæla seðlabankastjóra Más Guðmundssonar sem lýsti því yfir fyrir stuttu að töfin á Icesave málinu þurfi ekki að koma í veg fyrir lækkun stýrivaxta nú á næsta vaxtaákvörðunarfundi peningastefnunefndarinnar," segir í Morgunkorninu.
Mest lesið Völdu Noreg fram yfir Ísland þrátt fyrir að besta lausnin væri hér Viðskipti innlent Eiginkona stjórnarmanns keypti óvart í bankanum Viðskipti innlent Um forvitna yfirmanninn Atvinnulíf Linda tekur við sem framkvæmdastjóri fjármálasviðs Alvotech Atvinnulíf Hagnaðist um tæpar sjötíu milljónir króna Viðskipti innlent Forstjóri X hættir óvænt Viðskipti erlent Raunverð íbúða hefur þrefaldast frá aldamótum Viðskipti innlent „Ávísun á ánægjuleg viðskipti“ Samstarf Falsaði fleiri bréf Viðskipti innlent Engin U-beygja hjá Play Viðskipti innlent Fleiri fréttir Völdu Noreg fram yfir Ísland þrátt fyrir að besta lausnin væri hér Eiginkona stjórnarmanns keypti óvart í bankanum Raunverð íbúða hefur þrefaldast frá aldamótum Atli Óskar ráðinn rekstrarstjóri framleiðslu Engin U-beygja hjá Play Veitingamenn verulega óánægðir með eftirlitið Hindranir í vegi þess að lífeyrissjóðirnir taki þátt í hernaðaruppbyggingu Evrópu Spá umtalsverðum samdrætti í byggingu nýrra íbúða Falsaði fleiri bréf Veltir því upp hvort eigendum hafi verið refsað fyrir að tjá sig Hætta við yfirtökuna Harpa og Linda ráðnar forstöðumenn Stærsti samruninn í áraraðir á borð Samkeppniseftirlitsins Sylvía Kristín ráðin forstjóri Nova Íslenskur pítsastaður í Kína: „Það verður skrítnara og skrítnara að segja frá þessu“ Farþegum til landsins fjölgaði um tuttugu prósent Kvika hafi grætt töluvert á því að hafna upphaflegum tilboðum „Sem betur fer eru aðrir fiskar í sjónum“ Arion og Kvika í samrunaviðræður Eyþór hættur sem framkvæmdastjóri Hopp Svona munu stækkuð Skógarböð og hótel líta út Skrautleg saga laganna hans Bubba Sætta sig ekki við höfnun Kviku Hagnaðist um tæpar sjötíu milljónir króna Lofar bongóblíðu við langþráð langborð Minnstu sparisjóðirnir sameinast Spá 2,2 prósent hagvexti í ár Trausti Sigurður og Jóhanna nýir forstöðumenn hjá VÍS Sorglegt að þurfa að hætta rekstri eftir 38 ár í Hveragerði Starbucks opnaði á Laugavegi í dag Sjá meira