Ómar spenntur fyrir ísgöngum 16. október 2010 20:45 Ómar Ragnarsson. „
Það er spurning hvort það fáist fjármagn í þetta. Það vill enginn leggja fjármagn í neitt nema álver," segir Ómar Ragnarsson um hugmyndir um gerð ísganga í Langjökli. Hann segist þó vera spenntur fyrir hugmyndinni og sendir Borgfirðingum hvatningarkveðjur. Sérfræðingar komu nýverið á fund byggðarráðs Borgarbyggðar og kynntu hugmyndir um gerð ísganga í jöklinum. Óskuðu þeir eftir aðkomu sveitarfélagsins að undirbúningsfélagi um verkefnið. Greint var frá málinu á fréttavefnum Skessuhorn.is fyrr í dag. Hugmyndin er að gera ísgöng vestan til í Langjökli, norðan við Geitlandsjökul, en þangað liggur allgóður vegur frá vinsælum ferðaþjónustustöðum eins og Húsafelli og Reykholti. Grafið verður 30 metra niður í jökulinn í þéttan jökulís í þeim tilgangi að gera þar göng og hvelfingar. Ómar bendir á að málið sé á byrjunarstigi. Stjórnmálamenn í Borgarbyggð hafi ekki tekið afstöðu til verkefnisins. „En þetta er jákvætt og ég vona að fólkið gefist ekki upp strax." Ómar segir hafa séð fjölmarga íshella hér á landi í gegnum árin. Af hverjum ástæðum hafi landsmenn ekki verið spenntur fyrir því að nýta þá með einhverjum hætti í ferðamennsku. Álver sé það eina sem komist að hjá stórum hópi Íslendinga þegar atvinnuuppbygging ber á góma. Hann segir að Íslendingar verði að læra að reynslu annarra þjóða. „Áratuga reynsla er af því að nota íshótel í Lapplandi, bæði Svíþjóðarmegin og Finnlandsmegin, sem aðdráttarafl fyrir ferðamenn," segir Ómar og bætir við fleiri ferðmenn heimsæki Lappland á veturna heldur en Ísland allt árið. Þá bendir Ómar á að íshótelin á Lapplandi þurfi að reisa árlega ólíkt hugsanlegum ísgöngum og íshótelum hér á landi.
Tengdar fréttir Áhugasamir um gerð ísganga í Langjökli Sérfræðingar komu nýverið á fund byggðarráðs Borgarbyggðar og kynntu hugmyndir um gerð ísganga í Langjökli. Óskuðu þeir eftir aðkomu sveitarfélagsins að undirbúningsfélagi um verkefnið. Þetta kemur fram á fréttavefnum Skessuhorn.is 16. október 2010 16:20 Mest lesið Ferðamaður fannst látinn og þriggja saknað á eyjum Grikklands Erlent Palestínufánar í Mosfellsbæ vekja upp misgóð viðbrögð Innlent „Þetta var bara eins og hryðjuverk“ Innlent Hver er þessi 28 ára maður sem gæti orðið forsætisráðherra Frakka? Erlent Vitni segir bílinn hafa ekið hratt fram úr sér skömmu fyrir slysið Innlent Efast um viðbrögð frá ráðherrum í ljósi „sjálfsmorðsmissjóns“ VG Innlent Fjallkonan í ár er Ebba Katrín Innlent „Hvernig getur sama fólk snúist svona í skoðunum sínum?“ Innlent Flokkurinn standi ekki lengur með mannréttindum Innlent Netanjahú leysir stríðsráðið upp Erlent Fleiri fréttir Sextán sæmdir heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu Ósammála Hæstarétti og telja brot Brynjars nauðgun Hvergi betra að búa en á Íslandi Palestínufánar í Mosfellsbæ vekja upp misgóð viðbrögð Efast um viðbrögð frá ráðherrum í ljósi „sjálfsmorðsmissjóns“ VG Skora á Sjúkratryggingar að semja við tvo heimilislækna Flokkurinn standi ekki lengur með mannréttindum Fjallkonan í ár er Ebba Katrín Þjóðhátíðardagur, Arnarlax og úrsögn úr Samfylkingunni Rafmagn er komið á í Mosfellsbæ Eldur kviknaði í iðnaðarhúsnæði í Hafnarfirði „Þetta var bara eins og hryðjuverk“ „Hvernig getur sama fólk snúist svona í skoðunum sínum?“ Sælkerasveppir ræktaðir í gróðrarstöð í Mosfellsdal Óttast að Quang Le hafi samband við þolendur Vitni segir bílinn hafa ekið hratt fram úr sér skömmu fyrir slysið Altjón í tíu búðum Kringlunnar og undirbúningur fyrir þjóðhátíðardaginn Oddviti Garðarbæjarlistans hættir í Samfylkingunni Neita að borga tjón eftir að hafa mokað snjó yfir bíl Stútfull hátíðardagskrá um allt land á 17. júní „Þetta er stórtjón fyrir okkur“ Parísarhjól sprettur upp við höfnina Stefna á að opna Kringluna á þriðjudag Fá ekki fjármagn til að laga Flóttamannaleiðina fyrr en 2028 Isavia stefnir að því að hefja gjaldtöku í vikunni Það verði „drulluerfitt“ að rífa VG úr lægðinni Jarðaberjarækt í grænum iðngarði í Helguvík Búðareigendur aðstoðuðu slökkviliðsmenn Flúðu vettvang eftir harðan árekstur Slökkvistarf í Kringlunni og staða Vinstri grænna Sjá meira
Áhugasamir um gerð ísganga í Langjökli Sérfræðingar komu nýverið á fund byggðarráðs Borgarbyggðar og kynntu hugmyndir um gerð ísganga í Langjökli. Óskuðu þeir eftir aðkomu sveitarfélagsins að undirbúningsfélagi um verkefnið. Þetta kemur fram á fréttavefnum Skessuhorn.is 16. október 2010 16:20