Áhugavert ef Norðurlöndin afgreiða lán án Icesavelausnar 16. september 2010 11:04
Greining Íslandsbanka segir mjög áhugavert að sjá hvort næsta útgreiðsla Norðurlandalánanna komi samhliða þriðju endurskoðun Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS), en þrátt fyrir að Icesave málið sé ekki í höfn eru viðræður byrjaðar að nýju og samkomulag gæti verið innan seilingar. Kannski dugar það Norðurlöndunum að málið sé í vinnslu og lausn í sjónmáli? Þetta kemur fram í Morgunkorni greiningarinnar en samkvæmt tilkynningu frá efnahags- og viðskiptaráðuneytinu sem gefin var út í gær hefur náðst samkomulag um að þriðja endurskoðun efnahagsáætlunar Íslands verði tekin fyrir í framkvæmdastjórn AGS þann 29. september næstkomandi. „Athyglisverðasta niðurstaðan væri án efa sú ef lánafyrirgreiðslan frá Norðurlöndunum kæmi án nokkurra útskýringa og án þess að Icesave væri frágengið, þar sem að nokkuð skýrt var um þetta fjallað í skýrslu AGS frá því í apríl og kvað við nokkuð harðan tón varðandi Icesave," segir í Morgunkorninu. Í kjölfar þriðju endurskoðuninnar verður sá hluti láns AGS sem tengist þessum áfanga greiddur út, samtals 160 milljónir dollara eða um 18 milljarðar kr. sem verður notaður til að styrkja gjaldeyrisforða Seðlabankans. Gjaldeyrisforði Seðlabankans muni því aukast um sem því nemur. Forðinn gæti jafnvel aukist enn meira þar sem þriðji hluti láns Norðurlandanna að upphæð 444 milljónir evra, eða um 68 milljarðar kr. ætti að öllu jöfnu einnig að vera til reiðu að lokinni þriðju endurskoðun, en sá hluti lánsins veltur á framgangi Icesave málsins. Fari svo að sá hluti lánsins verði greiddur út er ljóst að um verulega innspýtingu í gjaldeyrisforðann er að ræða, sem ætti að geta gert það að verkum að næsta skref í afnámi gjaldeyrishaftanna þokist nær. Þegar þriðju endurskoðun er lokið eru enn eftir fjórar endurskoðanir til viðbótar á og er sú síðasta tímasett í ágúst 2011 þegar endalok efnahagsáætlunarinnar eru áformuð.
Mest lesið Stefndi á Hollywood en hefur ekki heyrt í þeim enn Atvinnulíf Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Viðskipti innlent Fjörutíu missa vinnuna hjá Tölvuteki Viðskipti innlent Birta lista yfir kaupendur: Á annað þúsund keypti fyrir tuttugu milljónir Viðskipti innlent Óskað eftir tillögum að uppbyggingu við Reykjanesvita Viðskipti innlent Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Viðskipti innlent Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Viðskipti innlent WOW millilendir á leiðinni til Los Angeles Viðskipti innlent Undirbúningur kólnunar: Hver er BMI stuðullinn þinn í vinnu? Atvinnulíf Opna seinna á Dalvegi og í Jafnaseli Neytendur Fleiri fréttir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Sjá meira