Matur

Jólakaka sem endist út janúar

Paul byrjaði á kökunni 23. október og þarf síðan að vökva hana reglulega fram að jólum.
Paul byrjaði á kökunni 23. október og þarf síðan að vökva hana reglulega fram að jólum.

Paul Newton gerir árlega enska jólaköku. Hann byrjar á henni í lok október og vökvar hana með koníaki öðru hverju fram að jólum.

„Ég hef gert svona köku árlega, allt frá því ég flutti hingað til Íslands árið 1983," segir Paul Newton, eigandi verslunarinnar Pipar og salt á Klapparstíg 44, sem gefur uppskrift að klassískri enskri jólaköku.

„Ég hef notað sömu uppskriftina öll árin en þó þróað hana eitthvað," segir Paul en margir viðskiptavina hans hafa fengið uppskriftina og fylgst með kökugerðinni hjá honum í gegnum tíðina. Paul byrjaði á kökunni 23. október og þarf síðan að vökva hana reglulega fram að jólum.

„Þá sný ég henni á hvolf, sting með prjónum í botninn og helli nokkrum matskeiðum af koníaki yfir," segir Paul en kakan er skreytt skömmu fyrir jól og síðan smakkað á henni á annan í jólum. „Svo endist hún oft út janúar enda mjög saðsöm," segir hann glaðlega.

Paul í Pipar og salt.

Ensk jólakaka

-sem best er að gera mörgum vikum fyrir jól

350 g ósaltað smjör

350 g púðursykur

450 g hveiti

6 egg

salt á hnífsoddi

½ tsk. kanill

½ tsk. múskat

½ tsk. negull

300 g sykraðir blandaðir ávextir

450 g ljósar rúsínur

450 g kúrenur

125 g rúsínur

125 g möndluflögur

30 ml síróp

1 bolli koníak

1 krukka hreint apríkósumauk

450 g möndlumarsípan

Paul segir undirbúning skipta miklu máli. Þannig sé gott að láta rúsínur og kúrenur liggja yfir nótt í koníaki.

Takið springform, annaðhvort eitt 23 cm í þvermál, eða tvö 18 cm. Setjið þrjú lög af smjörpappír á botninn og smyrjið með smjöri. Þetta er gert svo kakan brenni ekki. Setjið einnig þrjú lög af pappír í hliðar formsins. Brúnum maskínupappír er vafið utan um formið og bundið með bómullargarni. Á bökunarplötuna eru sett tvö lög af brúnum maskínupappír.

Deig: Blandið saman í skál kúrenum, rúsínum, ávöxtum, möndluflögum og kryddi. Þeytið í annarri skál smjör og púðursykur uns létt og ljóst og bætið svo einu og einu eggi í. Sigtið hveitið og blandið í eggjahræruna. Blandið henni svo saman við ávextina. Að lokum er afgangi af koníaki bætt saman við og sírópinu. Deigið er tilbúið ef það dettur af sleif.

Deigið er sett í form. Sumir geyma kökuna í ísskáp fram á næsta dag en einnig má baka hana strax. Úðið yfir kökuna með vatni og hyljið svo með tveimur lögum af smjörpappír sem hefur verið smurður með smjöri og klippið á loftgat.

Kakan er bökuð við 140 gráðu hita í 6 klukkustundir (en 3 klukkutíma ef formin eru tvö). Þegar kakan er bökuð þarf að pakka henni í tvöfalt lag af smjörpappír og pappírinn er festur vel með gúmmíteygjum. Svo er álpappír pakkað utan um hana og hún sett í loftþétt kökubox. Þar fær kakan að standa óhreyfð í nokkra daga. Vikulega er kakan tekin fram, gerðar litlar holur í botn og topp með grillprjóni og tveimur, þremur matskeiðum af koníaki hellt yfir.

Hálfum mánuði fyrir jól er kakan pensluð með hreinu apríkósumarmelaði sem er hitað fyrst. Það er gert svo marsípanið festist betur við kökuna. Marsípanið má kaupa tilbúið í stórmörkuðum eða hjá bakara. Það er rúllað út og lagt yfir kökuna.

Viku fyrir jól er kakan skreytt með flórsykursbráð. Sumir lita aðeins marsípanið hvítt því bráðina getur verið vandasamt að gera.

Flórsykursbráð

675 g flórsykur

4 eggjahvítur

1 msk. sítrónusafi

2 tsk. glýserín



Flórsykurinn sigtaður, eggjarauður þeyttar vel. Bætið við einni msk. af flórsykri í einu ofurhægt og þeytið vel á milli. Sítrónusafa og glýseríni bætt út í og þeytt uns blandan er orðin eins og marengs.

Skálin er hulin með rökum klút og geymd í einn til tvo tíma. Bráðina má lita með matarlit.

Flórsykursbráðin er borin á marsípanhúð kökunnar. Fyrst er borið á topp kökunnar, þegar það hefur þornað er bráðin sett á hliðar hennar. Kökuna má síðan skreyta með marsípanskrauti.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×