Da Vinci fléttan: „Svindlarar af hæstu gráðu“ 11. nóvember 2010 10:24 Roger Davidson. Vickram Bedi stendur við hlið hans.
Roger Davidson, píanistinn og milljarðaerfinginn sem Helga Ingvarsdóttir og Vickram Bedi eru sökuð um að hafa féflétt, hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna málsins og segist vera fórnarlamb svindlara af hæstu gráðu. Parið er sakað um að hafa haft af Davidson fúlgur fjár, að minnsta kosti sex milljónir dollara, með því að sannfæra hann um að lífi hans væri ógnað af pólskum munkum með tengsl við Opus Dei samtökin. Vickram Bedi lét hinsvegar hafa eftir sér í gær að Davidson hafi af fúsum og frjálsum vilja látið sig hafa peningana fyrir að koma í veg fyrir að upplýsingar úr tölvu Davidson, sem var sýkt af tölvuveiru, kæmust í hendur yfirvalda. Á tölvunni voru að sögn Vickrams, tónsmíðar píanistans, gríðarlegt magn af klámi, og tölvupóstar frá Davidson til lögfræðinga sinna þar sem lagt var á ráðin um að koma 400 milljónum bandaríkjadala til Bandaríkjanna frá skattaskjólum í Evrópu. Upplýsingafulltrúi Davidsons sendi frá sér yfirlýsingu til þess að bregðast við þessu í gær: „Þessir þjófar eru ekki venjulegir tölvuviðgerðarmenn eins og sumir miðlar hafa haldið fram," segir meðal annars. „Þau hafa rekið umsvifamikla þjónustu sem sérhæfði sig í tölvuöryggi á Internetinu. Þau öðluðust traust Davidsons með því að vefa flókið net lyga um leið og þau ræktuðu nána vináttu við hann. Hr. Davidson er virtur tónlistarmaður sem lenti í því að veira fór í tölvu hans. Á tölvunni var stór hluti ævistarfs hans á tónlistarsviðinu og lagði hann mikla áherslu á að því yrði bjargað," segir ennfremur. „Því miður, eins og á við mörg okkar, er hann ekki þjálfaður tölvusérfræðingur." Þá segir að helsta markmið Davidsons sé að aðstoða saksóknarann í Westchester sýslu við vinnslu málsins til þess að glæpamennirnir fái sína refsingu og til þess að hann fái peninga sína til baka. Að hans sögn hefur allur sannleikur málsins enn ekki komið í ljós, en að það muni gerast við málflutninginn. „Þangað til óskar Davidson eftir því að einkalíf hans og fjölskyldu verði virt á þessum erfiðu tímum."
Tengdar fréttir Faðir Helgu: „Ég trúi á sakleysi hennar" Ingvar J. Karlsson, faðir Helgu Ingvarsdóttur, sem er í haldi í Bandaríkjunum í tengslum við risavaxið fjársvikamál segist trúa á sakleysi dóttur sinnar og að sannleikurinn í málinu muni koma fram. 9. nóvember 2010 10:18 Da Vinci fléttan: Helga og Vickram funduðu með Obama Yfirvöld í Bandaríkjunum hafa fryst allar eigum Vicram Bedi, unnusta Helgu Ingvarsdóttir, en parið er í varðhaldi í Bandaríkjunum sakað um hafa svikið hundruðir milljóna út úr aukýfingnum Roger Davidson. 10. nóvember 2010 10:59 Da Vinci fléttan: Unnu náið með fórnarlambinu Í bæklingi frá Universal Sacred Music kemur fram að Helga Ingvarsdóttir gengdi stöðu gjaldkera í stjórn félagsins. Forseti samtakanna er Roger Davidson og unnusti Helgu, Vickram Bedi er varaforseti.samtakanna sem snúast um trúarlega klassíska tónlist. 9. nóvember 2010 16:20 Da Vinci fléttan: Málið er eins og sápuópera Lögreglan í New York-ríki rannsakar nú hvort hluti ágóðans af lygilegri svikamyllu Helgu Ingvarsdóttur og kærasta hennar, Vickram Bedi, hafi verið fluttur til Íslands. Þetta segir upplýsingafulltrúi saksóknaraembættisins í Westchester-sýslu, sem lýsir málinu sem sápuóperu. 10. nóvember 2010 06:00 Da Vinci fléttan: Var „lífvörður“ erfingjans á tónleikum Hið ótrúlega fjárkúgunarmál sem upp er komið í Bandaríkunum og tengist Íslandi á þann hátt að annar hinna grunuðu fjárkúgara er íslensk kona, hefur vakið mikla athygli. Á Youtube má sjá myndband frá árinu 2006 þar sem fórnarlambið Roger Davidson, milljónamæringur og þekktur píanóleikari heldur tölu á tónleikum sem hann skipulagði. Á bakvið Davidson stendur Vickram Bedi ábúðarfullur en hann taldi Davidson meðal annars á að ráða sig sem lífvörð. 9. nóvember 2010 07:57 Da Vinci fléttan: Demókratar gefa góðgerðarsamtökum framlagið Framlag Vickrams Bedi til kosningasjóðs Demókrataflokksins í Bandaríkjunum verður gefið góðgerðarsamtökum, eftir að upp koms um meinta fjárkúgun Bedi og Helgu Ingvarsdóttur. Þau eru grunuð um að hafa haft milljónir dollara af auðkýfingnum Roger Davidson. 10. nóvember 2010 12:36 Sagði föður Helgu hafa afneitað dóttur sinni Vickram Bedi er sagður hafa sannfært auðkýfinginn Roger Davidson um að faðir Helgu Ingvarsdóttur, Ingvar J. Karlsson, hefði afneitað henni. Roger er sagður hafa gefið Helgu 200 milljónir króna í gjöf þar sem fréttirnar hafi fengið mjög á hann. 10. nóvember 2010 11:57 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Forsetavaktin: Halla Tómasdóttir kjörin forseti Innlent Var nálægt því að draga framboð sitt til baka Innlent Ríkisstjórnin á erfiða daga fyrir höndum Innlent Fólk hafi kosið taktískt gegn Katrínu Innlent Ávarpaði stuðningsmenn af svölunum Innlent Veit ekki hvað tekur við en byrjar á kaffibolla Innlent Eiríkur Ingi nýr handhafi mets sem enginn vill eiga Innlent Fyrsti karlmakinn á Bessastöðum: „Draumaútkoman varð að veruleika” Innlent Svona var ávarp nýkjörinnar Höllu Tómasdóttur Innlent Batt á sig klút til heiðurs Höllu Innlent Fleiri fréttir Nýr forseti, kjörsókn sú besta í 28 ár og mat kjósenda Óskar Höllu til hamingju: „Þú verður góður forseti“ Svona var ávarp nýkjörinnar Höllu Tómasdóttur Ríkisstjórnin á erfiða daga fyrir höndum Þrjár efstu með 75 prósent atkvæða Niðurstöður talningar: Kjörsókn með besta móti Fyrsti karlmakinn á Bessastöðum: „Draumaútkoman varð að veruleika” Neðstu sex fengu samanlagt rúm þrjú þúsund atkvæði Dauðþreyttur Jón eyddi átta milljónum króna Ávarpaði stuðningsmenn af svölunum Könnun Maskínu daginn fyrir kjördag staðfesti flugið á Höllu Tómasdóttur Halla Hrund með hjartað fullt af þakklæti Aukafréttatími Stöðvar 2 Var nálægt því að draga framboð sitt til baka Fólk streymir í Bláa lónið á ný og sér eldgosið vel „Sigur MBA-gráðunnar, leiðtogafræða og mannauðsstjórnunar“ Björn lagði línuna og kjósendur svöruðu kallinu Veit ekki hvað tekur við en byrjar á kaffibolla Stöðugt hraunflæði til tveggja átta Eiríkur Ingi nýr handhafi mets sem enginn vill eiga Kosningarnar gerðar upp Hópur ungmenna réðst á starfsmann veitingastaðar Batt á sig klút til heiðurs Höllu Fólk hafi kosið taktískt gegn Katrínu Augljóst að kjósendur vilja konu sem næsta forseta Segir allt stefna í að Halla Tómasdóttir verði forseti Fyrstu tölur úr Suðvesturkjördæmi: Minnsti munurinn á Höllu og Katrínu hingað til Katrín ávarpaði stuðningsmenn: „Ég sé ekki eftir þessu“ Telur fylgið hafa farið á dreifingu vegna fjölda frambjóðenda Fyrstu tölur úr Norðvesturkjördæmi: Halla Tómasdóttir efst Sjá meira
Faðir Helgu: „Ég trúi á sakleysi hennar" Ingvar J. Karlsson, faðir Helgu Ingvarsdóttur, sem er í haldi í Bandaríkjunum í tengslum við risavaxið fjársvikamál segist trúa á sakleysi dóttur sinnar og að sannleikurinn í málinu muni koma fram. 9. nóvember 2010 10:18
Da Vinci fléttan: Helga og Vickram funduðu með Obama Yfirvöld í Bandaríkjunum hafa fryst allar eigum Vicram Bedi, unnusta Helgu Ingvarsdóttir, en parið er í varðhaldi í Bandaríkjunum sakað um hafa svikið hundruðir milljóna út úr aukýfingnum Roger Davidson. 10. nóvember 2010 10:59
Da Vinci fléttan: Unnu náið með fórnarlambinu Í bæklingi frá Universal Sacred Music kemur fram að Helga Ingvarsdóttir gengdi stöðu gjaldkera í stjórn félagsins. Forseti samtakanna er Roger Davidson og unnusti Helgu, Vickram Bedi er varaforseti.samtakanna sem snúast um trúarlega klassíska tónlist. 9. nóvember 2010 16:20
Da Vinci fléttan: Málið er eins og sápuópera Lögreglan í New York-ríki rannsakar nú hvort hluti ágóðans af lygilegri svikamyllu Helgu Ingvarsdóttur og kærasta hennar, Vickram Bedi, hafi verið fluttur til Íslands. Þetta segir upplýsingafulltrúi saksóknaraembættisins í Westchester-sýslu, sem lýsir málinu sem sápuóperu. 10. nóvember 2010 06:00
Da Vinci fléttan: Var „lífvörður“ erfingjans á tónleikum Hið ótrúlega fjárkúgunarmál sem upp er komið í Bandaríkunum og tengist Íslandi á þann hátt að annar hinna grunuðu fjárkúgara er íslensk kona, hefur vakið mikla athygli. Á Youtube má sjá myndband frá árinu 2006 þar sem fórnarlambið Roger Davidson, milljónamæringur og þekktur píanóleikari heldur tölu á tónleikum sem hann skipulagði. Á bakvið Davidson stendur Vickram Bedi ábúðarfullur en hann taldi Davidson meðal annars á að ráða sig sem lífvörð. 9. nóvember 2010 07:57
Da Vinci fléttan: Demókratar gefa góðgerðarsamtökum framlagið Framlag Vickrams Bedi til kosningasjóðs Demókrataflokksins í Bandaríkjunum verður gefið góðgerðarsamtökum, eftir að upp koms um meinta fjárkúgun Bedi og Helgu Ingvarsdóttur. Þau eru grunuð um að hafa haft milljónir dollara af auðkýfingnum Roger Davidson. 10. nóvember 2010 12:36
Sagði föður Helgu hafa afneitað dóttur sinni Vickram Bedi er sagður hafa sannfært auðkýfinginn Roger Davidson um að faðir Helgu Ingvarsdóttur, Ingvar J. Karlsson, hefði afneitað henni. Roger er sagður hafa gefið Helgu 200 milljónir króna í gjöf þar sem fréttirnar hafi fengið mjög á hann. 10. nóvember 2010 11:57